Fréttir

true

Hækkun húsaleigubóta

Húsaleigubætur hækkuðu um 10% frá síðustu mánaðamótum. Hækkunin er liður í mótvægisaðgerðum stjórnvalda til að draga úr áhrifum verðbólgu á lífskjör viðkvæmustu hópa samfélagsins. Hækkunin var ásamt öðrum mótvægisaðgerðum samþykkt á Alþingi með breytingu á ýmsum lögum 24. maí sl. Grunnfjárhæðir húsnæðisbóta hækkuðu um 10% frá 1. júní. Þá hækka frítekjumörk húsnæðisbóta um 3% afturvirkt…Lesa meira

true

Vistvænir bílar 60% sölunnar á árinu

Ríkissjóður hefur frá árinu 2012 veitt 27,5 milljarða króna í skattaívilnanir vegna kaupa á vistvænum bílum hingað til lands. Fyrir vikið hefur mikill árangur náðst í orkuskiptum fólksbílaflotans og er Ísland komið meðal fremstu þjóða á heimsvísu í rafbílavæðingu. Á fyrstu fimm mánuðum þessa árs var hlutfall vistvænna bíla 60% í nýskráningum. „Þróunin er mikilvægur…Lesa meira

true

Íþróttaskólinn í Dölum kominn í sumarfrí

Sumarhátið íþróttaskólans í Dalabyggð fór fram laugardaginn 4. júní. Mikil stemning, fjör og gleði var í hópi barnanna. „Íþróttaskólinn er fyrir öll börn 0-6 ára og hefur verið starfræktur núna í á annað ár og gengur vel. Þetta var síðasta skiptið á þessari önn, en við komum til með að byrja aftur síðari hlutann í…Lesa meira

true

Netkannanir um legu vega verða til og með 10. júní

Samgöngufélagið vekur athygli á tveimur netkönnunum þar sem kallað er eftir viðhorfum til breyttrar legu þjóðvegar 1, Hringvegar, þar sem þeim kostum er stillt upp að hann lægi annars vegar vestan Akrafjalls um Akranes og yfir Grunnafjörð þar fyrir norðan og inn á Hringveginn skammt frá Fiskilæk og hins vegar sem hjáleið fram hjá Borgarnesi.…Lesa meira

true

Brautskráning frá Landbúnaðarháskóla Íslands

Brautskráningardagur er mikill hátíðisdagur við Landbúnaðarháskóla Íslands. „Nú bíða nýjar áskoranir handan við hornið í síbreytilegum heimi þar sem tækifærin eru endalaus og frjósamur jarðvegur fyrir nýjar hugmyndir sem byggja á sjálfbærri nýtingu auðlinda landsins og tryggja heilnæmt og gott umhverfi,“ segir í tilkynningu frá skólanum. Brautskráning LbhÍ fór fram við hátíðlega athöfn í Hjálmakletti…Lesa meira

true

Tóku þyrluflug og göngu á topp Akrafjalls

Árgangur 1971 frá Akranesi er án alls efa samheldnasti árgangur fyrr og síðar og hópurinn sem slíkur beitt sér fyrir ýmsum framfaramálum í gegnum tíðina. Í gær var komið að árgangsmóti sem haldið er fimmta hvert ár og var glatt á hjalla að venju. Dagskráin hófst á fjallgöngu á Akrafjall. Auk þess var safnað fyrir…Lesa meira

true

Grímur AK aflahæstur á A svæði og þriðji yfir landið

Í nýliðnum maí lönduðu 611 bátar samtals 3.672 tonnum á strandveiðum og aflinn hefur aldrei verið meiri í einum mánui frá upphafi strandveiða 2009. Gefin hafa verið út 644 leyfi fyrir sumarvertíðina. Á vef Landssambands smábátaeigenda kemur fram að þorskur var 3.293 tonn í maí, sem er aukning um 699 tonn milli ára. Fimmtudaginn 30.…Lesa meira

true

Sláttur er hafinn í Hvalfjarðarsveit

Í gær, laugardaginn 4. júní, hófst sláttur á að minnsta kosti tveimur bújörðum í Hvalfjarðarsveit. Um hádegisbil sló Sigurður Þór Runólfsson bóndi á Eystra-Miðfelli fyrstu túnin. Segir hann sprettu vel yfir meðallagi síðustu ára. Í gærkvöldi hófu svo bændur í Belgsholti slátt og eins og sjá má á myndinni hér að neðan er þokkalegasta spretta…Lesa meira

true

Fyrsti laxinn í Norðurá kom á Stokkhylsbrotinu

Veiðin hófst í Norðurá í Borgarfirði í gærmorgun og fyrsti fiskurinn kom fljótlega á land á Stokkhylsbrotinu, stað sem einmitt er þekktur fyrir að gefa fyrsta lax sumarsins. Það var Dagur Svendsen sem veiddi glansandi og nýgenginn hæng. ,,Laxinn hjá Degi tók lítinn rauðan kón Frances og var 74 sentimetrar,“ sagði Ingvar Svendsen í samtali…Lesa meira

true

Síldarstúlkurnar koma í Borgarnes

Einleikurinn Síldarstúlkur verður sýndur á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi um helgina eftir að hafa verið í sýningu á Siglufirði á síðustu vikum. Það er Halldóra Guðjónsdóttir sem leikur í verkinu og er einnig höfundur þess ásamt Andreu Elínu Vilhjálmsdóttur sem leikstýrir. Að sögn Halldóru er sérlega spennandi að fá að sýna einleikinn Í Landnámssetrinu því…Lesa meira