
Stefán Jónsson á Grími AK landaði mestum afla á A svæði í maí. Ljósm. úr safni/kgk
Grímur AK aflahæstur á A svæði og þriðji yfir landið
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í nýliðnum maí lönduðu 611 bátar samtals 3.672 tonnum á strandveiðum og aflinn hefur aldrei verið meiri í einum mánui frá upphafi strandveiða 2009. Gefin hafa verið út 644 leyfi fyrir sumarvertíðina. Á vef Landssambands smábátaeigenda kemur fram að þorskur var 3.293 tonn í maí, sem er aukning um 699 tonn milli ára. Fimmtudaginn 30. maí var landað 373 tonnum á strandveiðum, sem er dagsmet. Fyrra metið var sett 28. júní á síðasta ári, þegar strandveiðibátarnir lönduðu 367 tonnum. Á öllum strandveiðisvæðum jókst afli milli ára. Hlutfallslega mest á svæði D svæði um 46% og munar þar mest um góðan ufsaafla. Áætlað aflaverðmæti var 1.347 milljónir króna í mánuðinum, sem er mikil hækkun frá síðasta ári þegar afli í maí gaf um 755 milljónir í verðmæti, segir á vef LS.\r\n\r\nÁ svæði A, sem nær frá Borgarbyggð til Súðavíkur, var aflaklóin Stefán Jónsson á Grími AK aflahæsti skipstjórinn í maí, en hann landaði alls 15.771 kílóum á Arnarstapa. Tveir bátar voru þó aflahærri yfir landið, báðir á D svæði, eða Nökkvi ÁR sem landaði 17.763 kg og Dögg SF sem landaði 16.003 kg. Á svæði A var Kolga BA með næstmestan afla, landaði 12.758 kílóum, Doddi SH 12.481 kg. og Heppinn AK 12.254 kg. Allir aflahæstu bátarnir á svæði A fóru í tólf róðra í mánuðinum.\r\n\r\nGóð veiði heldur áfram fyrstu dagana í júní því samkvæmt lista á hafnarskúrnum á Arnarstapa lönduðu 30 bátar þar 1. júní og voru allflestir þeirra með fullan dagsskammt af þorski, en auk þess með töluvert af ufsa og lítið eitt af karfa að auki. Og viti menn; Grímur AK landaði mestum afla þann dag; 789 kg af þorski og 330 kg. af ufsa.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_54013\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-54013 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/06/Grimur-AK-aflahaestur-a-A-svaedi_2-600x1239.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"1239\" /> Árni Freyr Stefánsson með tvo rígvæna ufsa um borð í Grími AK. Ljósm. aðsend.[/caption]",
"innerBlocks": []
}