Hópurinn á toppi Akrafjalls. Ljósmyndir: Pétur Magnússon.

Tóku þyrluflug og göngu á topp Akrafjalls

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Árgangur 1971 frá Akranesi er án alls efa samheldnasti árgangur fyrr og síðar og hópurinn sem slíkur beitt sér fyrir ýmsum framfaramálum í gegnum tíðina. Í gær var komið að árgangsmóti sem haldið er fimmta hvert ár og var glatt á hjalla að venju.\r\n\r\nDagskráin hófst á fjallgöngu á Akrafjall. Auk þess var safnað fyrir þyrluferð fyrir skólabræðurnar Svenna og Benna Kalla svo þeir gætu hitt mannskapinn á toppi fjallsins, en þeir eiga aðeins erfiðara með gang en aðrir. Sem og reyndar einnig bæjarstjórinn Sævar Freyr en samkvæmt læknisráði fer hann ekki í fjallgöngur. Eftir hádegið voru svo Langisandur sóttur heim og farið í Guðlaugu og í kjölfarið í skoðunarferð um bæinn. Venju samkvæmt var svo hátíðardagskrá um kvöldið þar sem félagsheimilið Miðgarður var miðpunkturinn en þar var borðað, skemmtiatriði flutt og dansað fram á rauða nótt með DJ Óla Palla eins og í félagsmiðstöðinni Arnardal forðum daga. „Alveg hreint frábærlega vel heppnað mót í alla staði og gaman að fá að vera með þessum snillingum,“ skrifaði Pétur Magnússon sem tók meðfylgjandi myndir sem hann góðfúslega leyfði Skessuhorni að birta.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"54011,54012\"]\r\n\r\n ",
  "innerBlocks": []
}
Tóku þyrluflug og göngu á topp Akrafjalls - Skessuhorn