{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ríkissjóður hefur frá árinu 2012 veitt 27,5 milljarða króna í skattaívilnanir vegna kaupa á vistvænum bílum hingað til lands. Fyrir vikið hefur mikill árangur náðst í orkuskiptum fólksbílaflotans og er Ísland komið meðal fremstu þjóða á heimsvísu í rafbílavæðingu. Á fyrstu fimm mánuðum þessa árs var hlutfall vistvænna bíla 60% í nýskráningum. „Þróunin er mikilvægur liður í metnaðarfullu markmiði stjórnvalda um að Ísland nái kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja,“ segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Auk 27,5 milljarða eftirgjafar vegna kaupa á vistvænum bílum bera slíkir bílar í fæstum tilvikum vörugjald við innflutning líkt og bílar sem ganga eingöngu fyrir eldsneyti og greiða lágmark bifreiðagjalds. Þá greiða eigendur hreinorkubifreiða eðli málsins samkvæmt engin vörugjöld af orkunotkun.",
"innerBlocks": []
}