Netkannanir um legu vega verða til og með 10. júní
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samgöngufélagið vekur athygli á tveimur netkönnunum þar sem kallað er eftir viðhorfum til breyttrar legu þjóðvegar 1, Hringvegar, þar sem þeim kostum er stillt upp að hann lægi annars vegar vestan Akrafjalls um Akranes og yfir Grunnafjörð þar fyrir norðan og inn á Hringveginn skammt frá Fiskilæk og hins vegar sem hjáleið fram hjá Borgarnesi.\r\n\r\nOpnað var fyrir þær kannanir sem hér um ræðir 22. maí sl. og er áformað að þær standi til og með 10. júní nk. Í könnununum má sjá mögulega legu veganna í þrívíddarupplifun frá ýmsum sjónarhornum og má taka þátt í þeim jafnt í gegnum tölvur og snjallsíma.\r\n\r\n\"Samkvæmt gildandi samgönguáætlun er áformað að ráðast í miklar endurbætur á leiðinni milli Hvalfjarðarganga og Borgarness á tímabilinu 2025-2034 með gerð svonefnds 2+1 vegar. Telja verður að lega helstu akleiða eins og Hringvegarins skipti samfélagið allt miklu máli, en ekki einvörðungu þau sveitarfélög og íbúa þeirra þar sem hann liggur. Samkvæmt núgildandi löggjöf um skipulag virðast sveitarfélögin hvert um sig þó hafa endanlegt ákvörðunarvald um legu vega og hvort af gerð þeirra getur yfirleitt orðið, sem engan veginn getur talist heppilegt fyrirkomulag a.m.k. ekki utan þéttbýlis.\r\n\r\nVerður að telja að við ákvarðanir um jafn mikilsverð mál og hér um ræðir, þ.e. legu helstu akleiða milli landshluta, geti verið talsvert gagn af þeirri nálgun sem hér er kynnt, þ.e. að öllum þeim sem áhuga hafi sé gefinn kostur á að sjá á einfaldan hátt kosti sem í boði eru og þeir geti komið afstöðu sinni um efnið á framfæri með góðu móti, en að formlegur vettvangur sé ekki „falinn“ inni í opinberum tilkynningum um tillögur að aðalskipulagi sveitafélaga þar sem vegur liggur og fæstir hafa yfirleitt hugmynd um að sé til meðferðar, sbr. t.d. tillaga að aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar, sem auglýst hefur verið með athugasemdafresti til 25. júní nk. Í þeirri tillögu er ekki gert ráð fyrir vegi yfir Grunnafjörð. Sérstaklega skal tekið fram að Grunnafjörður innan við rifin við minni hans er mikilvægt náttúruverndarsvæði, sem hefur verið friðlýst og það skráð sem svonefnt Ramsarsvæði, en flest bendir til að leggja megi veg yfir rifin, enda utan svæðis friðlýsingarinnar, án þess að náttúrfari verði raskað sem neinu nemur,\" segir í tilkynningu frá Samgöngufélaginu sem Jónas B Guðmundsson stýrir.\r\n\r\nHjáleið framhjá Borgarnesi er hins vegar inni á gildandi skipulagi Borgarbyggðar fyrir árin 2010-2022 en oft verið rætt um að taka hjáleiðina þar út.\r\n\r\nSjá nánar um þetta grein undirritaðs á vef Skessuhorns, <a href=\"http://www.skessuhorn\">www.skessuhorn</a>, hér <a href=\"https://skessuhorn.is/adsendar-greinar/ny-lega-hringvegar-um-akranes-og-borgarnes/\">https://skessuhorn.is/adsendar-greinar/ny-lega-hringvegar-um-akranes-og-borgarnes/</a>\r\n\r\n\"Þegar þetta er ritað hafa 587 manns tekið þátt í „Borgarneskönnuninni“ og 704 í „Grunnafjarðarkönnuninni“ en ekki er á þessu stigi kunnugt um hvaða afstaða þar kemur fram. Þess má geta að til að geta tekið þátt í könnunum þarf m.a. að skrá búsetu, þ.e. hvort viðkomandi er búsettur í viðkomandi sveitarfélagi eða /þéttbýlisstað þar sem vegur hefði hvað mest áhrif eða utan sveitarfélagsins, sem ætti að auka gildi þessara kannana.\r\n\r\nKannanirnar hafa verið auglýstar meðal annars hér á netmiðlinum <a href=\"http://www.skessuhorn.is\">www.skessuhorn.is</a>; og á samfélagsmiðlum.\r\n\r\nÞað er fyrirtækið Envalys ehf. sem annast gerð og hefur umsjón með þessum könnunum (<a href=\"http://www.envalys.is\">www.envalys.is</a>) en Samgöngufélagið ber á þeim ábyrgð.",
"innerBlocks": []
}
Netkannanir um legu vega verða til og með 10. júní - Skessuhorn