Úrbeining í Sláturhúsi Vesturlands. Ljósm. úr safni/mm.

Spretthópi falið að leggja fram tillögur um vanda í kjötframleiðslu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að skipa þriggja manna svokallaðan spretthóp sem skila á ráðherra tillögum og valkostagreiningu vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu hér á landi. Nefnir hún hópinn spretthóp þar sem hann skal skila af sér niðurstöðu í síðasta lagi 13. júní og verður hún kynnt fyrir ríkisstjórn daginn eftir.  Verð á helstu aðföngum hefur hækkað gríðarlega í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og litlar líkur eru á að þær hækkanir gangi til baka á næstu mánuðum eða jafnvel misserum. Þessi þróun mun, að öllu óbreyttu, kippa stoðum undan rekstri bænda m.a. flestra sauðfjár- og nautgripabúa. Þannig kunni framboð á innlendri vöru að dragast verulega saman næstu misseri með tilheyrandi áhrifum á fæðuöryggi.\r\n\r\n„Það liggur fyrir að áhrif innrásarinnar í Úkraínu verða langvinn og því ljóst taka verður stöðuna alvarlega. Formaður hópsins verður Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi ráðherra, en auk hans sitja í hópnum Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, og Saga Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Matvælaráðuneytið verður hópnum til aðstoðar. Hópurinn skal greina einstaka valkosti í stöðunni. Huga þarf sérstaklega að fæðuöryggi, verðlagi og hagsmunum neytenda og bænda í þessu samhengi,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.",
  "innerBlocks": []
}
Spretthópi falið að leggja fram tillögur um vanda í kjötframleiðslu - Skessuhorn