
Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj.
Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar í Borgarbyggð (uppf. frétt)
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar í Borgarbyggð var haldinn í gær. Það var Guðveig Lind Eyglóardóttir sem stýrði fundinum fram að kjöri forseta sveitarstjórnar, þar sem hún hefur lengstan starfsaldur sveitarstjórnarmanna.\r\n\r\nSigurður Guðmundsson (D) lagði fram bókun á fundinum, fyrir hönd minnihlutans, þar sem fram kom að gerðar hefðu verið athugasemdir við boðun fundarins og tímasetningu hans, en til fundarins var ekki boðað með lögbundnum fjögurra daga fyrirvara. Tímasetning fundar hafi hins vegar verið breytt. Þá var tekið af dagskrá að kynna málefnayfirlýsingu meirihlutans. Þegar brugðist hafði verið við athugasemdum var fundinum fram haldið. Minnihlutinn óskaði fulltrúum Framsóknarflokksins jafnframt velfarnaðar í störfum sínum og lýsti yfir óskoruðum vilja til að vinna af heilum hug að framfararmálum fyrir sveitarfélagið á komandi kjörtímabili í þágu íbúa og samfélags.\r\n\r\nÁ fundinum var Guðveig kjörin forseti sveitarstjórnar, Davíð Sigurðsson fyrsti varaforseti og Lilja Björg Ágústsdóttir annar varaforseti. Davíð var kjörinn formaður byggðarráðs og Guðveig varaformaður. Lilja Björg er einnig aðalmaður í byggðarráði og áheyrnarfulltrúar þar eru tveir, þær Bjarney Bjarnadóttir og Thelma Harðardóttir. Ekki var lokið við að kjósa í allar nefndir og ráð á þessum fyrsta fundi en því verður lokið á næsta reglulega fundi sveitarstjórnar sem haldinn verður á morgun, 9. júní. Þar verður málefnayfirlýsing B-listans einnig lögð fram.\r\n\r\n<em>(Ath: Fréttin var uppfærð klukkan 17:50)</em>",
"innerBlocks": []
}