
Bjartmar Þór með verðlaun og viðurkenningarskjöl.
Bjartmar Þór dúxaði í Borgó
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bjartmar Þór Unnarsson úr Reykholtsdal dúxaði við útskrift úr Borgarholtsskóla í síðustu viku. Bjartmar útskrifaðist af náttúrufræðibraut og var hlaðinn verðlaunum þegar haldið var heim. Hann hlaut m.a. viðurkenningu fyrir góðan árangur í íslensku, bestan árangur í nýsköpun, góðan árangur í náttúrufræðigreinum, fyrir einstaka ástundun og frábæran árangur í námi á afreksíþróttasviði. Bjartmar æfir körfubolta með Fjölni í Reykjavík og segist hafa verið mikið á æfingum samhliða skólagöngu sinni ásamt því að sinna hlutverki þjálfara.\r\n\r\nAðspurður segist Bjartmar hafa reynt að nýta tímann vel til að ná þessum árangri: ,,Ég vann oft langt fram á kvöld og reyndi að nýta tímann eins vel og ég gat. Vinur minn dúxaði í Menntaskóla Borgarfjarðar í fyrra svo ég gat ekki annað en reynt að gera það líka.“\r\n\r\nBjartmar stefnir svo á nám í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands næsta haust. Hann segist hafa haldið uppá áfangann með smá veislu og skellti sér svo til Danmerkur.",
"innerBlocks": []
}