{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðastliðinn föstudag mátti jafnt og þétt sjá eldri bílum ekið um Borgarbrautina, stofngötuna í Borgarnesi. Þá var árlegur skoðunardagur fornbíla hjá Frumherja við Sólbakka og voru meðal annars bílar í eigu félagsmanna í Fornbílafjelagi Borgarfjarðar í Brákarey færðir til skoðunar. Þeir hafa lítið sést á götunum í fimmtán mánuðim, eða frá því í febrúar á liðnu ári þegar safnhúsinu var lokað vegna ónógra eldvarna. Það var létt yfir stjórnarmönnum í félaginu þennan sólríka dag, enda binda menn vonir við að innan tíðar verði hægt að opna dyr safnsins að nýju og hefja félagsstarfið af krafti eftir langt hlé. Það mun þó endanlega skýrast á næstu dögum og vikum, að sögn Skúla G Ingvarssonar formanns félagsins.\r\n\r\nHér stilla þeir sér upp framan við M-123 og M-77 þeir Gunnar G. Gunnarsson, Skúli G. Ingvarsson, Guðsteinn Oddsson, Benedikt G. Lárusson og Jón G. Guðbjörnsson. („G“ er til marks um hversu glaðir þeir eru).",
"innerBlocks": []
}