Athafnasvæði Skagans-3X á Akranesi.

Uppsagnir hjá Skaganum 3X

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sjö starfsmönnum Skagans-3X á Akranesi og í Reykjavík var sagt upp störfum á þriðjudaginn og að auki níu starfsmönnum fyrirtækisins á Ísafirði. Framvegis verða öll verkefni seld og afhent til viðskiptavina frá Akranesi en ekki á báðum stöðum; Ísafirði og Akranesi, eins og verið hefur fram að þessu. Einnig verða innkaup og vöruhús á einum stað í framtíðinni í stað tveggja áður. Á Ísafirði verða framleiddir íhlutir og smærri vélar fyrir stærri vörulausnir samstæðunnar. Þá hefur sú stefna verið mörkuð að auka áherslu á vöruþróun fyrirtækjanna og þjónustu á Ísafirði. Starfsmannahópurinn tekur því breytingum í ljósi þess, segir í tilkynningu.\r\n\r\nAð sögn Guðjóns M Ólafssonar forstjóra Skagans-3X hafa ytri aðstæður á mörkuðum verið fyrirtækjum undir hatti Skagans-3X mjög erfiðar undanfarin tvö ár. „Afleiðingar Covid þekkja allir en stríðsátökin í Austur-Evrópu hafa m.a. leitt til hækkandi hráefnisverðs, hækkunar verðs á íhlutum og ekki síst hefur þrengt mjög að mörkuðum. Þessar erfiðu aðstæður eru ástæðan fyrir þeim skipulagsbreytingum sem við ráðumst nú í,“ segir Guðjón. „Markmiðið með þessum skipulagsbreytingum er að bæta samkeppnishæfni fyrirtækisins, ná skýrara vöruframboði og einfaldari rekstri. Við ætlum að gera rekstur fyrirtækisins betur í stakk búið til að takast á við sín verkefni í því erfiða ástandi sem nú ríkir á mörkuðum. Við erum að velta við hverjum steini í rekstrinum og þessar skipulagsbreytingar eru hluti af því ferli,“ segir Guðjón M Ólafsson.",
  "innerBlocks": []
}
Uppsagnir hjá Skaganum 3X - Skessuhorn