
Þrír framboðslistar voru lagðir fram á Akranesi fyrir lokafrest á hádegi í dag. Það eru: B-listi Framsóknar með frjálsum, D-listi Sjálfstæðisflokks og S-listi Samfylkingar.Lesa meira

Þrír framboðslistar voru lagðir fram á Akranesi fyrir lokafrest á hádegi í dag. Það eru: B-listi Framsóknar með frjálsum, D-listi Sjálfstæðisflokks og S-listi Samfylkingar.Lesa meira

Enginn framboðslisti barst kjörstjórn Hvalfjarðarsveitar fyrir lokafrest á hádegi í dag. Guðmundur Ólafsson formaður kjörstjórnar staðfestir þetta i samtali við Skessuhorn. Því verður kosið samkvæmt persónukjöri 14. maí í vor. Fimm af núverandi sveitarstjórnarmönnum biðjast undan kjöri í persónukosningum, aðrir kjörgengir verða í kjöri, eða um 500 íbúar. Þeir sem biðjast undan endurkjöri sitja allir…Lesa meira

Enginn framboðslisti var lagður fram til kjörstjórnar Dalabyggðar þegar framboðsfrestur rann út á hádegi í dag. Einn listi, Framsóknir og frjálsir, hafði verið kynntur til leiks fyrr í vikunni, en hann var ekki lagður fram þegar á reyndi í ljósi þess að aðrir listar voru ekki væntanlegir. Valdís Einarsdóttir, sem sæti á í kjörstjórn, staðfestir…Lesa meira

Nú í aðdraganda sveitarstjórnakosninga 14. maí eru Öryrkjabandalag Íslands og Þroskahjálp að ferðast um landið og funda með frambjóðendum og kjósendum. Slíkir fundir hafa m.a. verið haldnir á Akranesi og í Borgarnesi. Næsti fundur verður haldinn í Stykkishólmi mánudaginn 11. apríl, á Hótel Fransiskus. Fundarefnið er staða fatlaðs fólks í sveitarfélögum. Málaflokkur fatlaðs fólks var…Lesa meira

Fréttablaðið greinir frá því í dag að Karl Gauti Hjaltason fv. alþingismaður Flokks fólksins og síðar Miðflokksins hafi kært lögreglustjórann á Vesturlandi til ríkissaksóknara fyrir að hætta rannsókn á hendur yfirkjörstjórn á Vesturlandi vegna talningar atkvæða í Borgarnesi að loknum alþingiskosningum 25. september sl. Karl Gauti var einn þeirra frambjóðenda sem náði þingsæti á kosninganótt…Lesa meira

Þriðjudaginn 29. mars síðastliðinn komu saman um 300 unglingar í Hjálmakletti í Borgarnesi til að skemmta sér saman og hlusta á hæfileikaríka söngvara keppa um tvö sæti í Söngkeppni Samfés. Æskulýðsballi Óðals og undankeppni SamVest var að þessu sinni slegið saman í einn stóran viðburð en ekki hefur verið hægt að halda Æskulýðsballið síðustu tvö…Lesa meira

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur ákveðið að samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor skuli fara fram skoðanakönnun meðal íbúa um afstöðu þeirra til sameiningar við önnur sveitarfélög. Málið var fyrst rætt á fundi í janúar og var byggðarráði falið að útfæra íbúakönnun varðandi málið og leggja fyrir sveitarstjórn til umfjöllunar. Þar var málið síðan rætt og tók Róbert Ragnarsson…Lesa meira

„Eftir tveggja ára hlé vegna covid virðist ekkert koma í veg fyrir að nú verði helgihald um páskana. Við erum sannarlega spennt að opna kirkjudyrnar aftur á þessari helgustu hátíð kristinna manna,“ segir Þráinn Haraldsson sóknarprestur Akraness og Saurbæjarprestakalls í samtali við Skessuhorn. Hann segir að margt í dagskránni verði hefðbundið. Á skírdagskvöld er guðsþjónusta…Lesa meira

Þeir félagar Heimir og Þorgeir úr Reykjavík voru í óða önn að laga bát sinn Seley BA á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi þegar fréttaritari Skessuhorns rakst á þá í liðinni viku. Báturinn er frá Flateyri en Heimir og Þorgeir segjast sigla á honum sér til skemmtunar en geyma hann í Stykkishólmi yfir vetrartímann. „Nei, þetta er…Lesa meira

Þessa dagana eru iðnaðarmenn frá Skipavík í Stykkishólmi að störfum við byggingu á glæsihúsi á jörðinni Hólum í Helgafellssveit. Húsið er um 280 fermetrar að stærð á fallegum útsýnisstað þar sem má sjá yfir eyjarnar á Breiðafirði. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er áætlaður byggingarkostnaður um hálfur milljarður króna. Húsið er reist á súlum og er þrefalt…Lesa meira