
Frá Búðardal. Ljósm. gj.
Vilji íbúa til sameiningar verður kannaður
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur ákveðið að samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor skuli fara fram skoðanakönnun meðal íbúa um afstöðu þeirra til sameiningar við önnur sveitarfélög. Málið var fyrst rætt á fundi í janúar og var byggðarráði falið að útfæra íbúakönnun varðandi málið og leggja fyrir sveitarstjórn til umfjöllunar. Þar var málið síðan rætt og tók Róbert Ragnarsson ráðgjafi þátt í þeim fundi gegnum fjarfundarbúnað, en hann hefur víða komið að slíkum verkefnum og starfar nú hjá KPMG. Í framhaldinu tók sveitarstjórn formlega ákvörðun um að könnun um sameiningarmál yrði lögð fyrir íbúa samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor. Þar verður spurt hvort fólk telji að Dalabyggð ætti að hefja skoðun á kostum og göllum sameiningar og um mat þess á þremur valkostum í því efni:\r\n<ol>\r\n \t<li>A) Sameiningu við Húnaþing vestra</li>\r\n \t<li>B) Sameiningu við sameinað sveitarfélag Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar.</li>\r\n \t<li>C) annað, hvað?</li>\r\n</ol>\r\nÁ næstunni verður kynningarefni um valkostagreininguna sem var unnin 2021 dreift til íbúa svo þeir geti tekið afstöðu til framangreindra kosta sem spurt verður um.",
"innerBlocks": []
}