
Húsið sem nú er risið að Hólum í Helgafellssveit. Ljósm. af.
Glæsihús í byggingu við Breiðafjörðinn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þessa dagana eru iðnaðarmenn frá Skipavík í Stykkishólmi að störfum við byggingu á glæsihúsi á jörðinni Hólum í Helgafellssveit. Húsið er um 280 fermetrar að stærð á fallegum útsýnisstað þar sem má sjá yfir eyjarnar á Breiðafirði. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er áætlaður byggingarkostnaður um hálfur milljarður króna.\r\n\r\nHúsið er reist á súlum og er þrefalt gler í því öllu. Það er skoskur stóreignamaður sem mun vera eigandi hússins. Áætlað er að húsið verði tilbúið í haust en það hefur verið í byggingu í hálft annað ár.",
"innerBlocks": []
}