Fréttir

true

Eldur í bíl á bifreiðaverkstæði

Um nónbil í dag var Slökkvilið Snæfellsbæjar kallað út vegna elds á bifreiðaverkstæði í Rifi. Kviknað hafði í bíl sem var í viðgerð, en starfsmaður verkstæðisins náði að slökkva eldinn áður en hann breiddist frekar út. Bifreiðin er talin ónýt en annað tjón varð ekki.Lesa meira

true

Tæknimessa var haldin í FVA

Á fimmtudag í liðinni viku var öllum nemendum í 8.-10. bekk af öllu Vesturlandi boðið í heimsókn á Akranes þar sem þeir fengu kynningu á iðnnámi og afreksdeild Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þá fóru ungmennin að Grundartanga og í Nýsköpunarsetrið á Breið. Alls voru þetta um 800 nemendur og starfsmenn skólanna af Vesturlandi sem komu…Lesa meira

true

Skæð fuglaflensuveira fannst í haferni sem drapst við Breiðafjörð

Í upphafi þessarar viku barst Matvælastofnun tilkynning um að skæðar fuglaflensuveirur hefðu fundist í íslenskum haferni sem drapst í október 2021. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkar veirur finnast hér á landi. „Þetta rennir stoðum undir það mat sérfræðinga að miklar líkur séu á að alvarleg afbrigði fuglaflensuveira berist með farfuglum hingað til lands.…Lesa meira

true

Styttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur stolið af stalli sínum við Laugarbrekku

Fyrr í dag uppgötvaðist að búið var að stela af stalli sínum bronsstyttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur sem stóð á Laugarbrekku á Hellnum. Stytta þessi var afhjúpuð aldamótaárið 2000 en það gerði Ólafur Ragnar Grímsson þáverandi forseti Íslands við hátíðlega athöfn. Guðríður Þorbjarnardóttir var uppi um árið 1000 og talin ein víðförlasta kona heims sem uppi…Lesa meira

true

Símasamband áfram í Hítardal

Síðastliðinn mánudag stóð til að símafyrirtækið Vodafone aftengdi bæinn Hítardal í Hraunhreppi í Mýrasýslu frá fastlínu símakerfisins. Við þá aðgerð hefði símasamband við bæinn rofnað nær alfarið því GSM samband næst ekki á svæðinu, internetsamband getur dottið út og ljósleiðari er ekki kominn á bæinn. Finnbogi Leifsson bóndi í Hítardal upplýsti byggðarráð Borgarbyggðar um þetta…Lesa meira

true

Mikill fjöldi á páskabingói útskriftarnema FVA

Bingóþyrstir Skagamenn og nærsveitungar hafa haft í nógu að snúast undanfarið. Nýverið stóð Tinna Ósk Grímarsdóttir og vinir hennar fyrir fjölskyldubingói á sal FVA til stuðnings Krabbameinsfélagi Akraness og nágrennis og sama dag hélt umhverfisnefnd Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit bingó til styrktar hjálparstarfi í Úkraínu. Í gær buðu svo útskriftarnemar Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi upp á…Lesa meira

true

Ríkisendurskoðun skoðar lögmæti sölu Íslandsbanka

Fjármála- og efnahagsráðherra fór þess í dag á leit við Ríkisendurskoðun að stofnunin geri úttekt á því hvort sala á hlutum ríkisins í Íslandsbanka 22. mars síðastliðinn hafi samrýmst lögum og góðum stjórnsýsluháttum. „Samkvæmt lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga hefur ríkisendurskoðandi m.a. það hlutverk að hafa eftirlit með framkvæmd samninga sem eru gerðir við…Lesa meira

true

Nýsköpunarnet Vesturlands stofnað

Stofnfundur Nýsköpunarnets Vesturlands (NýVest) fór fram í Breið nýsköpunar- og þróunarsetri að Bárugötu 8-10 á Akranesi síðdegis í gær. Páll S. Brynjarsson framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) setti fundinn og síðan tók Gísli Gíslason formaður undirbúningsnefndar NýVest og fundarstjóri við boltanum og kynnti félagið. Eftir að hefðbundinni stofnfundardagskrá lauk þá ávarpaði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir…Lesa meira

true

Hraðakstur við hesthúsahverfið

Borið hefur á því undanfarið að margir ökumenn aki of hratt og séu jafnvel að spyrna í botngötunni sem nú er frá hesthúsahverfinu á Æðarodda í átt að hundasvæðinu rétt utan Akraness. 30 kílómetra hámarkshraði er þarna og rækilega merkt beggja megin. Óttast hestamenn um öryggi sitt því ökumenn aka samsíða reiðstíg hestamanna og hafa…Lesa meira

true

Arionbanki með besta tilboðið í viðskipti bæjarins

Föstudaginn 11. mars voru opnuð tilboð á fundi bæjarráðs Akraness vegna útboðs um bankaviðskipti kaupstaðarins. Á fundi bæjarráðs síðasta fimmtudag samþykkti ráðið að taka hagstæðasta tilboði bjóðenda sem eftir nánari skoðun, leiðréttingu á útreikningi í samræmi við tilboð og samkvæmt skilmálum útboðsins, var Arionbanki. Bæjarráð fól bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins, þ.e. að ganga frá samningi…Lesa meira