Haförninn á meðfylgjandi mynd sást vankaður við Rif á Snæfellsnesi í nóvember 2017. Ekki er útilokað að um sama fugl sé að ræða, þótt það sé engan veginn víst. Ljósm. af.

Skæð fuglaflensuveira fannst í haferni sem drapst við Breiðafjörð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í upphafi þessarar viku barst Matvælastofnun tilkynning um að skæðar fuglaflensuveirur hefðu fundist í íslenskum haferni sem drapst í október 2021. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkar veirur finnast hér á landi. „Þetta rennir stoðum undir það mat sérfræðinga að miklar líkur séu á að alvarleg afbrigði fuglaflensuveira berist með farfuglum hingað til lands. Það er því brýnt að alifuglaeigendur gæti sérstaklega vel að sóttvörnum sem lúta að því að koma í veg fyrir smit úr villtum fuglum. Jafnframt er mikilvægt að allir sem finna dauða villta fugla tilkynni Matvælastofnun um þá,“ segir í tilkynningu frá MAST.\r\n\r\nHaförninn sem um ræðir var með senditæki á sér og því er vitað að hann drapst 8. október í fyrra við Breiðafjörð. Fuglafræðingar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands sóttu fuglinn og bættu honum í hóp annarra hafarna sem drepist hafa á síðastliðnum árum og hópurinn var síðar sendur til Þýskalands til ýmiss konar rannsókna, sem tengjast verkefni á vegum Náttúrufræðistofnunar. Þýska rannsóknarstofan hefur sem reglu að ganga úr skugga um hvort fuglaflensuveirur séu í þeim villtu fuglum sem þeir fá til rannsóknar og þá greindust skæðar fuglaflensuveirur í þessum fugli. Fram kemur í frétt stofnunarinnar að um er að ræða alvarlegt afbrigði af fuglaflensuveirum af gerðinni H5N1. „Engar sérstakar ráðstafanir verða gerðar vegna þessarar greiningar þar sem langt er liðið frá því að fuglinn fannst og staðurinn sem hann fannst á er langt frá byggðu bóli,“ segir í tilkynningu MAST.\r\n\r\nÞað afbrigði veirunnar sem greindist (H5N1) er það sem geisað hefur víða um Evrópu á undanförnum mánuðum og nú einnig í Kanada og Bandaríkjunum. Í upphafi þessa árs bárust fréttir af því að sama afbrigði af fuglaflensuveirum hefði fundist í Austur-Kanada og með rannsóknum á erfðaefni þeirra var hægt að sýna fram á að þær hafi borist með fuglum frá Evrópu, hugsanlega með viðkomu hér á landi. „Af þessum tilfellum má draga þá ályktun að miklar líkur séu á að skæðar fuglaflensuveirur berist með farfuglum til landsins. Það er því enn mikilvægara en áður að fuglaeigendur geri ráðstafanir til að koma í veg fyrir að smit berist í fuglana þeirra úr villtum fuglum.“\r\n\r\nLoks er minnt á að sum afbrigði fuglaflensu geta sýkt fólk. Því er ávallt mikilvægt að gæta persónulegra sóttvarna við handfjötlun á villtum fuglum. Ef taka þarf upp dauðan fugl skal það gert með einnota hönskum og hann settur í plastpoka eða með því að stinga hendi í plastpoka og taka fuglinn upp með pokanum og draga pokann svo yfir fuglinn og loka fyrir.",
  "innerBlocks": []
}
Skæð fuglaflensuveira fannst í haferni sem drapst við Breiðafjörð - Skessuhorn