{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Borið hefur á því undanfarið að margir ökumenn aki of hratt og séu jafnvel að spyrna í botngötunni sem nú er frá hesthúsahverfinu á Æðarodda í átt að hundasvæðinu rétt utan Akraness. 30 kílómetra hámarkshraði er þarna og rækilega merkt beggja megin. Óttast hestamenn um öryggi sitt því ökumenn aka samsíða reiðstíg hestamanna og hafa jafnvel tekið upp á því að nota bílflautuna á hestamenn. Við það geta hrossin fælst og það getur verið stórhættulegt. Lögregla hyggst fljótlega skoða aðstæður á svæðinu og setja upp myndavélabíl til að stemma stigu við hraðakstrinum.",
"innerBlocks": []
}