{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bingóþyrstir Skagamenn og nærsveitungar hafa haft í nógu að snúast undanfarið. Nýverið stóð Tinna Ósk Grímarsdóttir og vinir hennar fyrir fjölskyldubingói á sal FVA til stuðnings Krabbameinsfélagi Akraness og nágrennis og sama dag hélt umhverfisnefnd Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit bingó til styrktar hjálparstarfi í Úkraínu.\r\n\r\nÍ gær buðu svo útskriftarnemar Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi upp á páskabingó í sal skólans til að safna fyrir útskriftarferð sinni til Krítar í sumar. Bingóið átti að byrja klukkan átta en var seinkað til hálf níu vegna þess að mikill fjöldi bingóunnenda var mættur og biðröð myndaðist alla leið að inngangi skólans. Mikil og góð stemning var og spilaðar 15 umferðir þar sem fullt af glæsilegum vinningum voru gefnir af fyrirtækjum á Akranesi og nágrenni.\r\n\r\nBingóstjórar kvöldsins voru þær Salka Brynjarsdóttir og Sólrún Lilja Finnbogadóttir og stóðu þær sig með mikilli prýði. Sá háttur var á að ef fleiri en einn voru með bingó í hverju spili þá var dregið úr spilastokk og sá sem var með hæsta spilið fékk vinninginn. Það voru því margir sáttir vinningshafar sem gengu út í nóttina rétt eftir tíu í gær eftir vel heppnað bingó útskriftarnema í FVA.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_52545\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-52545 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/04/Mikill-fjoldi-a-paskabingoi-utskriftarnema-FVA3-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Sólrún Lilja og Salka voru Bingóbjössar kvöldsins. Ljósm. vaks[/caption]",
"innerBlocks": []
}