
Akurnesingurinn Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason mun á næstu dögum láta af starfi aðstoðarbankastjóra Arionbanka. Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs bankans, hefur verið ráðin í hans stað. Fram kemur í tilkynningu til kauphallar að Ásgeir hafi verið ráðinn forstjóri Skel fjárfestingafélags hf. og mun ásamt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni stjórnarformanni og aðaleiganda fyrirtækisins stýra uppbyggingu öflugs skráðs…Lesa meira








