Hélt risabingó til stuðnings krabbameinsfélaginu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Tinna Ósk Grímarsdóttir og vinir hennar í Team Tinna á Akranesi stóðu fyrir fjölskyldubingói í sal FVA síðastliðinn fimmtudag. Sjálf hafði Tinna lagt nótt við dag við söfnun vinninga og annan undirbúning. Bauð hún vinahópnum sínum að mæta, en sá hópur er fjölmennur og því fullt út úr dyrum á bingóinu. Lalli töframaður var bingóstjóri og fór á kostum og þá var einnig tónlistarflutningur í hléi og seldar pizzur. Alls safnaðist um hálf milljón króna og rennur afraksturinn allur til Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis. Sjálf er Tinna Ósk að glíma við krabbamein en hún segist í samtali við Skessuhorn elska að spila bingó. Þarna hafi hún því fundið góða leið til að skemmta sér og öðrum. Fjölmörg fyrirtæki gáfu vinninga og áttu bingóstjórarnir í raun fullt í fangi með að útdeila öllum pokunum með allskyns vinningum, en pokarnir voru á annað hundraðið. Því voru oftast spilaðar stystu línurnar á bingóspjaldinu og jafnvel bætt við tölum eftir hvern vinning til að sem flestir fengju vinninga. Það voru því margir glaðir vinningshafar að kvöldi loknu.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"52481,52480,52479,52478,52477,52476\"]\r\n\r\n ",
  "innerBlocks": []
}