
Um nónbil í dag var Slökkvilið Snæfellsbæjar kallað út vegna elds á bifreiðaverkstæði í Rifi. Kviknað hafði í bíl sem var í viðgerð, en starfsmaður verkstæðisins náði að slökkva eldinn áður en hann breiddist frekar út. Bifreiðin er talin ónýt en annað tjón varð ekki.Lesa meira








