Styttulaus stallur á Laugarbrekku. Ljósm. af

Styttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur stolið af stalli sínum við Laugarbrekku

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrr í dag uppgötvaðist að búið var að stela af stalli sínum bronsstyttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur sem stóð á Laugarbrekku á Hellnum. Stytta þessi var afhjúpuð aldamótaárið 2000 en það gerði Ólafur Ragnar Grímsson þáverandi forseti Íslands við hátíðlega athöfn. Guðríður Þorbjarnardóttir var uppi um árið 1000 og talin ein víðförlasta kona heims sem uppi var á þeim tíma. Hún var talin fyrsta konan af evrópskum uppruna sem fæddi barn í Ameríku og var hún því nefnd Móðir Ameríku. „Þetta er ómerkilegur þjófnaður,“ segir Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ í samtali við Skessuhorn, og segist mjög sleginn yfir þessum stuldi. Búið er að kæra þjófnaðinn til Lögreglunnar á Vesturlandi.\r\n\r\nBronsstyttan er afsteypa af styttu Ásmundar Sveinssonar af Guðríði og syni hennar, Snorra Þorfinnssyni. Upphaflega var styttan gerð fyrir Heimssýninguna í New York árið 1940, en afsteypu var svo komið fyrir við Laugarbrekku árið 2000 eins og fyrr segir, fleiri afsteypur eru til. Þær eru í New York, Glaumbæ í Skagafirði og í Páfagarði.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-52552\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/04/Styttunni-af-Gudridi-THorbarnardottur-stolid-af-stalli-i-Laugarbrekku_2-600x450.jpg\" alt=\"\" />",
  "innerBlocks": []
}
Styttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur stolið af stalli sínum við Laugarbrekku - Skessuhorn