Ríkisendurskoðun skoðar lögmæti sölu Íslandsbanka

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fjármála- og efnahagsráðherra fór þess í dag á leit við Ríkisendurskoðun að stofnunin geri úttekt á því hvort sala á hlutum ríkisins í Íslandsbanka 22. mars síðastliðinn hafi samrýmst lögum og góðum stjórnsýsluháttum. „Samkvæmt lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga hefur ríkisendurskoðandi m.a. það hlutverk að hafa eftirlit með framkvæmd samninga sem eru gerðir við einkaaðila og hafa eftirlit með starfsemi og árangri ríkisaðila. Lögin kveða á um að ríkisendurskoðandi ákveði sjálfur hvernig hann sinnir hlutverki sínu samkvæmt lögunum,“ segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Nánar er fjallað um nýafstaðna sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka <a href=\"https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022/04/06/kaupendur-hluta-i-islandsbanka/\">í tilkynningu sem birt var á vef ráðuneytisins 6. apríl sl</a>.",
  "innerBlocks": []
}
Ríkisendurskoðun skoðar lögmæti sölu Íslandsbanka - Skessuhorn