{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðastliðinn mánudag stóð til að símafyrirtækið Vodafone aftengdi bæinn Hítardal í Hraunhreppi í Mýrasýslu frá fastlínu símakerfisins. Við þá aðgerð hefði símasamband við bæinn rofnað nær alfarið því GSM samband næst ekki á svæðinu, internetsamband getur dottið út og ljósleiðari er ekki kominn á bæinn. Finnbogi Leifsson bóndi í Hítardal upplýsti byggðarráð Borgarbyggðar um þetta fyrir stuttu og óskaði eftir að sveitarfélagið setti sig í samband við Vodafone vegna málsins. Var það gert og í fundargerð byggðarráðs frá því í dag kemur fram að fengist hafi í gegn að fá því frestað að taka heimasímatenginguna úr sambandi. Hlýtur tryggt símasamband að vera gríðarlegt öryggismál á þessum slóðum, en skemmst er að minnast stórrar skriðu sem féll þar sumarið 2018. Til stendur að leggja ljósleiðara að Hítardal og er talið brýnt að gott símasamband haldist með öðrum hætti fram að því.",
"innerBlocks": []
}