{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fimmtudag í liðinni viku var öllum nemendum í 8.-10. bekk af öllu Vesturlandi boðið í heimsókn á Akranes þar sem þeir fengu kynningu á iðnnámi og afreksdeild Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þá fóru ungmennin að Grundartanga og í Nýsköpunarsetrið á Breið. Alls voru þetta um 800 nemendur og starfsmenn skólanna af Vesturlandi sem komu í heimsókn. Mikið líf og fjör var þennan dag og góð stemning þegar blaðamaður Skessuhorns kíkti við og tók meðfylgjandi myndir.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"52485,52486,52487,52488,52489,52490,52491,52492,52493,52494\"]",
"innerBlocks": []
}