
Bára Einarsdóttir og Harpa Hlín Þórðardóttir við veiðistað 14 í Leirá fyrir nokkrum dögum. Ljósm. gb.
Leirá að gefa þrátt fyrir kuldatíð
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vorveiðin á sjóbirting er hafin en það er frekar kalt og verður áfram næstu daga. Veiðimenn þurfa því að klæða sig vel ætli þeir að halda til veiða. Þeir sem hafa reynt fyrir sér hafa margir verið að fiska vel þrátt fyrir kuldann.\r\n\r\n„Já, það var kalt í fyrradag við Leirá, en við fengum fiska. Það eru fiskar víða í ánni,“ sagði Stefán Sigurðsson, en áin var opnuð með 26 fiska veiði á fyrsta degi sem verður að teljast býsna gott. „Þessi byrjun lofar góðu og núna eru komnir á land um 40 fiskar. Það styttir biðina eftir að laxveiðitíminn hefjist fyrir alvöru að renna fyrir sjóbirting,“ sagði Stefán ennfremur.\r\n\r\n,,Við fengum nokkra fiska og konan þann fyrsta á þessu vori, þetta var fín útivera,“ sagði Þórður Ingi Júlíusson er við hittum hann við Grímsá í Borgarfirði á fyrsta degi veiða. Það voru komnir 14 fiskar á land þegar tíðindamaður Skessuhorns var á svæðinu.",
"innerBlocks": []
}