Kvenfélag Ólafsvíkur styrkir íbúðakjarnann

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Kvenfélag Ólafsvíkur lætur sér annt um hina ýmsu starfsemi í bæjarfélaginu sínu, eins og svo mörg önnur félög. Hefur félagið í gegnum árin fært hinum ýmsu félögum og stofnunum góðar gjafir. Á síðasta mánudag færði félagið Þjónustuíbúðakjarna Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga í Ólafsvík 250 þúsund króna peningagjöf. Það var Jón Haukur Hilmarsson forstöðumaður íbúðakjarnans sem tók við peningagjöfinni frá stjórnarkonum í kvenfélaginu þeim Elsu Bergmundsdóttur, Margréti Sigríði Birgisdóttur og Gerði Þórðardóttur.",
  "innerBlocks": []
}
Kvenfélag Ólafsvíkur styrkir íbúðakjarnann - Skessuhorn