
Frá stofnun Nemastofu atvinnulífsins. Ljósm. Stjórnarráðið.
Nemastofa atvinnulífsins tekur til starfa
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nemastofa atvinnulífsins var formlega stofnuð síðastliðinn þriðjudag í húsnæði Iðunnar fræðsluseturs, að viðstöddum ráðherra, fulltrúum úr atvinnulífi og skólameisturum framhaldsskólanna. Nemastofa atvinnulífsins er í jafnri eigu Iðunnar og Rafmenntar fyrir hönd fyrirtækja og félagsmanna sem standa að viðkomandi félögum.\r\n\r\nNemastofan verður samstarfsvettvangur samtaka í atvinnulífinu um bætt vinnustaðanám og fjölgun faglærðs starfsfólks. „Markmið með Nemastofu atvinnulífsins er að fjölga fyrirtækjum og iðnmeisturum sem taka nema á vinnustaðanámssamning. Með tilkomu stofnunarinnar eykst yfirsýn yfir fjölda nemenda í vinnustaðanámi auk þess sem aðgengi nemenda að starfsnámi verður bætt og einfaldað,“ segir í kynningu. Samhliða stofnun Nemastofu atvinnulífsins var vefur hennar formlega opnaður: nemastofa.is.",
"innerBlocks": []
}