Vatn komið á körfubílinn í Borgarnesi þar sem Friðrik Pálmi Pálmason varðstjóri í Borgarnesi stýrði aðgerðum. Ljósm. tfk.

Þjálfunarstjóranámskeið slökkviliðsmanna á Vesturlandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Helgina 1. – 3. apríl var haldið umfangsmikið þjálfunarstjóranámskeið í Borgarnesi fyrir slökkviliðsmenn af Vesturlandi og víðar. Alls voru tuttugu slökkviliðsmenn frá Akranesi, Borgarnesi, Búðardal, Grundarfirði, Reykhólum, Snæfellsbæ, Stykkishólmi og Skagaströnd sem sátu námskeiðið sem samanstóð af bóklegum æfingum á föstudeginum og verklegum æfingum á laugardag og sunnudag. Markmiðið með námskeiðinu var að efla æfingar hjá liðunum sem skilar sér í betri slökkviliðum. Það voru þeir Lárus Kristinn Guðmundsson frá Brunavörnum Árnessýslu og Þorlákur Snær Helgason frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem sáu um kennslu sem fór fram í Borgarnesi og á Akranesi.\r\n\r\n<em>Sjá fleiri myndir frá námskeiðinu í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Þjálfunarstjóranámskeið slökkviliðsmanna á Vesturlandi - Skessuhorn