Árni Múli Jónasson og Þuríður Harpa Sigurðardóttir í upphafi eins fundarins. Ljósm. ÖBÍ.

Fundaherferð Öryrkjabandalagsins og Þroskahjálpar um landið

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú í aðdraganda sveitarstjórnakosninga 14. maí eru Öryrkjabandalag Íslands og Þroskahjálp að ferðast um landið og funda með frambjóðendum og kjósendum. Slíkir fundir hafa m.a. verið haldnir á Akranesi og í Borgarnesi. Næsti fundur verður haldinn í Stykkishólmi mánudaginn 11. apríl, á Hótel Fransiskus. Fundarefnið er staða fatlaðs fólks í sveitarfélögum. Málaflokkur fatlaðs fólks var fluttur frá ríki til sveitarfélaga árið 2011 og hefur verið fjárhagslegt bitbein æ síðan. Það er mat Sambands íslenskra sveitarfélaga að það vanti um 8 til 12 milljarða frá ríkinu til sveitarfélaga til að þau nái að sinna málaflokknum nægjanlega vel.\r\n\r\nLjóst er á könnun sem Öryrkjabandalagið lét Gallup vinna snemma í vor að kjósendum er langt frá því að vera sama um hvernig haldið er á málum. Ríflega 80% aðspurðra segja það hafa áhrif á hvaða framboð þeir velja, hversu mikla áherslu framboðið leggur á málefni fatlaðs fólks. Væntanlega þekkja langflestir til fatlaðs einstaklings, annað hvort í stór fjölskyldu sinni, eða vinafjölskyldu, sem hefur áhrif á afstöðu þeirra.\r\n\r\nÞuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, segir að samtal og samráð við sveitarfélögin sé sérstaklega mikilvægt, og því ómetanlegt að hitta frambjóðendur og ræða málin. „Það er ljóst nú þegar, að þekking innan sveitarfélaganna á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, er ekki nógu mikil, og þetta er því kærkomið tækifæri að blása verðandi bæjarfulltrúum metnað fyrir málaflokknum í brjóst,“ segir Þuríður Harpa. Hún segir að það sé almenn skoðun þeirra frambjóðenda sem sótt hafa þá fundi sem haldnir hafa verið, að þeir hafi verið upplýsandi, og þarft innlegg í kosningabaráttuna.",
  "innerBlocks": []
}
Fundaherferð Öryrkjabandalagsins og Þroskahjálpar um landið - Skessuhorn