{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Eftir tveggja ára hlé vegna covid virðist ekkert koma í veg fyrir að nú verði helgihald um páskana. Við erum sannarlega spennt að opna kirkjudyrnar aftur á þessari helgustu hátíð kristinna manna,“ segir Þráinn Haraldsson sóknarprestur Akraness og Saurbæjarprestakalls í samtali við Skessuhorn. Hann segir að margt í dagskránni verði hefðbundið. Á skírdagskvöld er guðsþjónusta með altarisgöngu í Akraneskirkju, í lok hennar er altarið afskrýtt og skilið eftir autt fyrir föstudaginn langa. Að morgni páskadags við hátíðarmessu klukkan 11 eru altarisgripirnir síðan bornir inn aftur og sigri lífsins þannig fagnað á sérstakan hátt.\r\n\r\n<strong>Lestur passíusálma</strong>\r\n\r\nÁ föstudaginn langa verða passíusálmarnir lesnir í Hallgrímskirkju í Saurbæ. „Að þessu sinni verður lesturinn brotinn upp með tónlistarflutningi. Kór Saurbæjarprestakalls byrjar með tónlistarflutning kl. 13 og svo mun biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðardóttir lesa fyrsta sálminn. Lesturinn stendur svo fram eftir degi, með tónlistarflutningi inn á milli og mun Sif Tulinius fiðuleikari spila. Eftir lestur síðasta sálmsins mun Kór Akraneskirkju loka deginum með tónlistarflutningi. Fólk getur komið og farið að vild yfir daginn. Á heimasíðu prestakallsins munum við birta dagskrá þar sem fram kemur hvenær tónlistarflutningurinn verður,“ segir Þráinn.\r\n\r\n<strong>Kyrravika í aðdraganda páska</strong>\r\n\r\nMiðpunktur dymbilvikunnar verður í Hallgrímskirkju í Saurbæ með dagskránni frá Betaníu til Emmaus. „Dymbilvikan, hin heilaga kyrravika í aðdraganda páskahátíðarinnar, hefur alla tíð haft algjöra sérstöðu í trúariðkun kristninnar. Í sameiginlegu helgihaldi og í persónulegu trúarlífi hafa söfnuðir og einstaklingar fetað með Kristi veg þjáningarinnar að skelfingu krossfestingarinnar, staðið ráðvillt með lærisveinunum eftir að hann var lagður í gröf og hlaupið fagnandi á eftir konunum að hinni opnu gröf páskaundursins.“ Þráinn segir að hlutverk dagskrárinnar undir heitinu frá Betaníu til Emmaus sé að tengja saman hin hefðbundnu tilefni kirkjugöngu í dymbilviku og um páska og gefa þeim sem vilja, kost á að nálgast atburðina sem minnst er með sameiginlegri íhugun og daglegu helgihaldi frá laugardegi fyrir pálmasunnudag til annars páskadags.“\r\n\r\nHallgrímskirkja í Saurbæ, umhverfi hennar og minjar um veru Guðríðar og Hallgríms á staðnum ásamt Passíusálmunum og þeirri hefð að flytja þá á föstunni og einkum á Föstudaginn langa gerir staðinn mjög heppilegan til að fylgja þessari dagskrá. „Dagskráin hefur þó verið reynd bæði á Akureyri og Reykjavík auk Skálholts. Sr. Kristján Valur Ingólfsson fyrrum vígslubiskup í Skálholti sem býr í Saurbæ leiðir dagskrána ásamt prestum prestakallsins. Allt helgihald Dymbilvikunnar stefnir til kvöldmáltíðarinnar með hinum upprisna Drottni Jesú Kristi í Páskanæturmessunni sem er hápunktur þessarar dagskrár og hefst á laugardagskvöldinu kl. 23. Þetta er annars konar helgihald en á venjulegum sunnudegi og mikil upplifun að taka þátt í hinum fornu hefðum kirkjunnar sem mótað hafa páskahald hennar. Allir eru velkomnir hvenær sem er í dymbilvikunni í Hallgrímskirkju í Saurbæ,“ segir séra Þráinn Haraldsson.",
"innerBlocks": []
}
Helgihald og dagskrá í dymbilviku og um páska - Skessuhorn