
Stjórnsýsluhúsið á Hagamel. Ljósm. arg.
Kosið verður óhlutbundnum kosningum í Hvalfjarðarsveit
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Enginn framboðslisti barst kjörstjórn Hvalfjarðarsveitar fyrir lokafrest á hádegi í dag. Guðmundur Ólafsson formaður kjörstjórnar staðfestir þetta i samtali við Skessuhorn. Því verður kosið samkvæmt persónukjöri 14. maí í vor. Fimm af núverandi sveitarstjórnarmönnum biðjast undan kjöri í persónukosningum, aðrir kjörgengir verða í kjöri, eða um 500 íbúar. Þeir sem biðjast undan endurkjöri sitja allir í núverandi sveitarstjórn. Það eru: Björgvin Helgason, Daníel Ottesen, Guðjón Jónasson, Brynja Þorbjörnsdóttir og Ragna Ívarsdóttir.",
"innerBlocks": []
}