Fréttir

true

Bæjarmálasamtökin bjóða fram í Snæfellsbæ

Framboð J-lista, Bæjarmálasamtaka Snæfellsbæjar, býður fram í sveitarstjórnarkosningunum í Snæfellsbæ 14. maí næstkomandi. Listinn var kynntur á föstudaginn, sama dag og framboðsfrestur rann út. Tveir listar verða því í kjöri í sveitarfélaginu; J listi og D listi Sjálfstæðisflokks. Við síðustu kosningar hlaut D listi tæp 60% atkvæða og fjóra menn í bæjarstjórn en J listi…Lesa meira

true

ÍA með fjóra Íslandsmeistara í badminton

Meistaramót Íslands í badminton fór fram fimmtudaginn 7. apríl til laugardagsins 9. apríl í húsum TBR við Gnoðarvog um helgina en Badmintonsamband Íslands hélt mótið í samstarfi við TBR. 145 keppendur voru skráðir til leiks frá átta félögum og voru átta keppendur frá Badmintonfélagi ÍA sem tóku þátt í mótinu. Keppt var í úrvalsdeild, 1.…Lesa meira

true

Þjófnaður á styttu reyndist gjörningur tveggja nýlistamanna

Bronsstyttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur, sem stolið var af stalli sínum við Laugarbrekku á Hellnum á Snæfellsnesi í síðustu viku, var skilað á bílastæði í Reykjavík í gær. Styttunni hafði verið komið fyrir inni í einhvers konar eldflaug sem sett var framan við Nýlistasafnið í Reykjavík. Samkvæmt heimildum Skessuhorns voru þjófarnir tveir nýlistamenn sem þekktir eru…Lesa meira

true

Talsvert hernaðarbrölt sýnilegt fólki

Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 stendur nú yfir vestan við landið og inni á Hvalfirði. Fyrirfram var búið að dagsetja æfinguna dagana 2.-14. apríl. Í fyrramálið, mánudag, verður lendingaræfing bandarískra landgönguliða haldin á Miðsandi í Hvalfirði. Nú þegar er talsverð umferð herskipa á leið inn í Hvalfjörð og inni á firðinum sást auk þess kafbátur í morgun.…Lesa meira

true

Kári og Víkingur Ó áfram í Mjólkurbikarnum

Kári tók á móti liði Árborgar í 1. umferð Mjólkurbikarsins í knattspyrnu karla í hádeginu í gær og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Kári gerði út um leikinn í fyrri hálfleik með þremur mörkum á átta mínútna kafla. Fyrst var það Fylkir Jóhannsson sem skoraði á 35. mínútu og síðan bættu þeir Ingimar Elí Hlynsson…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin hefja leik í Mjólkurbikarnum í dag

Fyrsta umferð Lengjubikarsins í knattspyrnu karla hófst í gær með ellefu leikjum og í dag mæta til leiks lið af Vesturlandi. Kári frá Akranesi ríður á vaðið í hádeginu þegar þeir taka á móti Árborg í Akraneshöllinni og hefst leikurinn klukkan 12. Frítt er inn og engar takmarkanir. Kári fékk góðan liðsstyrk fyrir leikinn því…Lesa meira

true

Herdís Erna ráðinn skólastjóri Auðarskóla

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum síðasta þriðjudag að ráða Herdísi Ernu Gunnarsdóttur í starf skólastjóra Auðarskóla. Herdís er með B.Sc. í líffræði og B.Ed. í grunnskólakennarafræði og hefur leyfisbréf sem leik-, grunn- og framhaldsskólakennari. Auk þess er hún að leggja lokahönd á lokaritgerð sína í M.Ed. námi í stjórnun menntastofnana við Háskóla Íslands. Á…Lesa meira

true

Tveir listar bjóða fram í Snæfellsbæ

Líkt og fyrir fjórum árum verða tveir framboðslistar í kjöri í Snæfellsbæ. Það er D-listi Sjálfstæðisflokks og J-listi Bæjarmálasamtaka Snæfellsbæjar. Kristinn Jónasson bæjarstjóri staðfestir þetta í samtali við Skessuhorn.Lesa meira

true

Nýr framboðslisti í sameinuðu sveitarfélagi á Snæfellsnesi

Nýr framboðslisti hefur komið fram í sameinuðu sveitarfélagi Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar. Ber hann nafnið Íbúalistinn Stykkishólmi og Helgafellssveit og hefur listabókstafinn Í. Listann leiðir Haukur Garðarsson skrifstofustjóri frá Rarik og í öðru sæti er Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir kennari. Listinn í heild er þannig: Nr. 1. Haukur Garðarsson, skrifstofustjóri hjá Rarik Nr. 2. Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir,…Lesa meira

true

Fjórir listar í boði í Borgarbyggð

Á hádegi í dag rann út frestur til að skila inn framboðum til sveitarstjórna. Í Borgarbyggð verða fjórir listar í kjöri. Það staðfestir Sveinbjörn Eyjólfsson formaður yfirkjörstjórnar í samtali við Skessuhorn. Þetta eru: A-listi Samfylkingar og Viðreisnar B-listi Framsóknarflokks D-listi Sjálfstæðisflokks V-listi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs.Lesa meira