Vesturlandsliðin hefja leik í Mjólkurbikarnum í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrsta umferð Lengjubikarsins í knattspyrnu karla hófst í gær með ellefu leikjum og í dag mæta til leiks lið af Vesturlandi. Kári frá Akranesi ríður á vaðið í hádeginu þegar þeir taka á móti Árborg í Akraneshöllinni og hefst leikurinn klukkan 12. Frítt er inn og engar takmarkanir. Kári fékk góðan liðsstyrk fyrir leikinn því í gær fengu þeir á láni frá ÍA þá Finnboga Laxdal Aðalgeirsson og Ísak Örn Elvarssson og eru þeir komnir með leikheimild fyrir leikinn á eftir.\r\n\r\nVíkingur Ólafsvík mætir Berserki/Mídasi á Víkingsvelli í Fossvoginum í dag og hefst sá leikur klukkan 14. Víkingur fékk einnig liðsstyrk í gær þegar þýski miðjumaðurinn Armin Maier gekk til liðs við Víking og er klár í slaginn í dag. Sigurvegarar úr þessum leikjum mætast síðan í 2. umferðinni og því gætu Kári og Víkingur Ólafsvík mæst í Vesturlandsslag laugardaginn 23. apríl.\r\n\r\nÁ morgun, sunnudag, mætast síðan í Vesturlandsslag lið Reynis Hellissands og Skallagríms úr Borgarnesi á Ólafsvíkurvelli og hefst viðureignin klukkan 14. Sigurvegarinn úr þessum leik mætir í 2. umferðinni annað hvort liði Þróttar  úr Vogum eða ÍR úr Breiðholti á heimavelli föstudaginn 22. apríl.\r\n\r\nÞá leikur kvennalið ÍA í dag gegn Einherja frá Vopnafirði lokaleik sinn í riðli 2 í C deild kvenna í Lengjubikarnum. Leikurinn fer fram í Boganum á Akureyri og hefst leikurinn klukkan 15.",
  "innerBlocks": []
}
Vesturlandsliðin hefja leik í Mjólkurbikarnum í dag - Skessuhorn