
Móðurskip sjóhersins mun liggja við stjóra utarlega í Hvalfirði og frá því munu svo sigla landtökuprammar og svifnökkvar með liðsaflann sem telja mun 200-400 manns. Ljósm. mm.
Talsvert hernaðarbrölt sýnilegt fólki
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 stendur nú yfir vestan við landið og inni á Hvalfirði. Fyrirfram var búið að dagsetja æfinguna dagana 2.-14. apríl. Í fyrramálið, mánudag, verður lendingaræfing bandarískra landgönguliða haldin á Miðsandi í Hvalfirði. Nú þegar er talsverð umferð herskipa á leið inn í Hvalfjörð og inni á firðinum sást auk þess kafbátur í morgun.\r\n\r\nÞetta er í fyrsta sinn sem æfingin Norður – Víkingur hefur verið haldin síðan árið 2011. Um er að ræða tvíhliða varnaræfingu Íslands og Bandaríkjanna en einn helsti hápunktur æfingarinnar verður æfing landtöku landgönguliða bandaríska sjóhersins af sjó sem hefst um klukkan 9 í fyrramálið. Þótti besti staðurinn fyrir þann hluta æfingarinnar vera Miðsandur í Hvalfirði, fjaran sem liggur á milli Hvalstöðvarinnar og gömlu olíubryggjunnar.\r\n\r\nLandgönguæfingin fer þannig fram að móðurskip sjóhersins mun liggja við stjóra utarlega í firðinum og frá því munu svo sigla landtökuprammar og svifnökkvar með liðsaflann sem telja mun 200-400 manns. Liðsaflinn mun dvelja í fjörunni dagpart. Hugsanlega mun hluti hans leggja í göngu meðfram þjóðveginum.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_52593\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-52593 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/04/Talsvert-hernadarbrolt-synilegt-folki-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Nú rétt í þessu mátti sjá hvalaskoðunarbát, herskip og svifnökkvi á vegum hersins á sundunum utan við Reykjavík, en þessi tækjabúnaður ásamt fleiri skipum og kafbátum stefnir nú inn á Hvalfjörð vegna æfingarinnar. (símamynd tekin frá Akranesi)[/caption]",
"innerBlocks": []
}