
Styttulaus stallur á Laugarbrekku. Ljósm. af
Þjófnaður á styttu reyndist gjörningur tveggja nýlistamanna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bronsstyttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur, sem stolið var af stalli sínum við Laugarbrekku á Hellnum á Snæfellsnesi í síðustu viku, var skilað á bílastæði í Reykjavík í gær. Styttunni hafði verið komið fyrir inni í einhvers konar eldflaug sem sett var framan við Nýlistasafnið í Reykjavík. Samkvæmt heimildum Skessuhorns voru þjófarnir tveir nýlistamenn sem þekktir eru fyrir að hafa framkvæmt ýmsa gjörninga áður.\r\n\r\nSunna Ástþórsdóttir, safnstjóri í Nýlistasafninu, staðfestir <a href=\"https://www.visir.is/g/20222246830d/stolna-styttan-komin-i-leitirnar-thad-tharf-ad-fara-yfir-malid-\">við fréttastofu visir.is</a> að styttan hafi birst fyrir utan safnið á laugardag. Einnig að stuldur styttunnar hafi ekki verið í samráði við Nýlistasafnið. Sunna gat að öðru leyti ekki tjáð sig um málið; það væri allt saman í skoðun.\r\n\r\nKristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ er einn þriggja núlifandi fulltrúa í undirbúningsnefnd sem beittu sér fyrir því um aldamótaárið að afsteypu af listaverkinu yrði komið fyrir á Hellnum. Kristinn segist í samtali við Skessuhorn ætla að hitta að máli fulltrúa Nýlistasafnsins eftir helgi og þá sem stóðu að þeim „gjörningi“ að nema styttuna á brott. Vonast hann til að fá botn í málinu og að því verði lokið með farsælum hætti þannig að bronsstyttan komist á stall sinn við Laugarbrekku sem fyrst. „Það er aðalatriði í mínum huga að styttan sé komin í leitirnar. Það verður farið yfir málið,“ segir Kristinn og bætir við að hlutaðeigandi hafi skilið eftir nokkuð skýr skilaboð við styttuna.",
"innerBlocks": []
}