Fréttir

true

Lít á starf oddvita í sveitarstjórn sem fullt starf

Framboðslisti Framsóknarflokksins í Borgarbyggð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var nýverið kynntur. Guðveig Lind Eyglóardóttir leiðir listann, líkt og hún gerði einnig fyrir kosningarnar 2014 og 2018. Sest var niður með Guðveigu og rætt um kosningarnar framundan, helstu baráttumál listans, framtíðarsýn hennar og þær áskoranir sem bíða fulltrúa í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Sjá Skessuhorn sem kom út…Lesa meira

true

Svavar Viðarsson með nýtt lag og plata á leiðinni í sumar

Tónlistarmaðurinn Svavar Viðarsson gaf síðasta föstudag út lagið Stjörnur á Spotify en sama dag varð hann fimmtugur og því tvöfalt tilefni til þess að fagna þennan dag. Lagið Stjörnur er eftir Svavar en textinn eftir Ragnar Z. Guðjónsson. Lagið syngja þau Bjarni Ómar Haraldsson og Skagakonan Rakel Pálsdóttir. Síðla sumars kemur síðan út EP plata…Lesa meira

true

Góður árangur hjá Sundfélagi Akraness um helgina

Íslandsmeistaramótið í sundi í 50 metra laug fór fram um helgina í innilauginni í Laugardalslaug þar sem flestir af bestu sundmönnum landsins tóku þátt og sendi Sundfélag Akraness alls sjö keppendur á mótið í ár. Á föstudaginn uppskáru keppendur ÍA ein bronsverðlaun, Akranesmet og þrjú landsliðslágmörk. Kristján Magnússon vann til bronsverðlauna í 50 metra skriðsundi…Lesa meira

true

Valentin fékk gull á Mjölnir Open

Glímumótið Mjölnir Open 16 var haldið síðasta laugardag. Mótið er sterkasta glímumót landsins þar sem öflugasta glímufólk landsins etur kappi. Mjölnir Open er elsta brasilíska Jiu-Jitsu-mót landsins enda hefur það verið haldið árlega frá árinu 2006 að undanskildu árinu 2020 þegar kórónuveirufaraldurinn kom í veg fyrir mótahald. Þetta er því einn stærsti viðburður ársins í…Lesa meira

true

Ný kosningalög meingölluð

Nú liggur fyrir að ný kosningalög, sem meðal annars kveða á um hæfi kjörstjórnarmanna, munu setja kosningaundirbúning í mörgum sveitarfélögum í uppnám. Nýju lögin tóku gildi um áramótin og mun í sveitarstjórnarkosningunum 14. maí í fyrsta skipti reyna á þau. Sérstakar breytingar voru gerðar á reglum um hæfi kjörstjórnarmanna. Áður gat fólk ekki tekið sæti…Lesa meira

true

ÍA með fjóra Íslandsmeistara í badminton

Meistaramót Íslands í badminton fór fram fimmtudaginn 7. apríl til laugardagsins 9. apríl í húsum TBR við Gnoðarvog en Badmintonsamband Íslands hélt mótið í samstarfi við TBR. 145 keppendur voru skráðir til leiks frá átta félögum og voru átta keppendur frá Badmintonfélagi ÍA sem tóku þátt í mótinu. Keppt var í úrvalsdeild, 1. deild og…Lesa meira

true

Slökkvilið Borgarbyggðar útskrifar 19 nýliða

Um helgina luku 19 nýliðar sex mánaða æfingaferli Slökkviliðs Borgarbyggðar. Þá lauk stór hluti hópsins einnig grunnmenntun slökkviliðsmanna hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem sér um löggildingar slökkviliðsmanna. Í frétt á upplýsingasíðu Borgarbyggðar kemur fram að þessi hópur sem útskrifaðist um helgina er nú kominn á útkallsskrá slökkviliðsins.Lesa meira

true

Kári og Víkingur Ó áfram í Mjólkurbikarnum

Kári tók á móti liði Árborgar í 1. umferð Mjólkurbikarsins í knattspyrnu karla í hádeginu á laugardaginn og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Kári gerði út um leikinn í fyrri hálfleik með þremur mörkum á átta mínútna kafla. Fyrst var það Fylkir Jóhannsson sem skoraði á 35. mínútu og síðan bættu þeir Ingimar Elí Hlynsson…Lesa meira

true

Hlutfallslega mest fjölgun í Hjálpræðishernum

Alls voru 228.546 einstaklingar hér á landi skráður í Þjóðkirkjuna 1. apríl samkvæmt skráningu Þjóðskrár. Hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 720 einstaklinga síðan 1. desember 2021. Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.709 skráða meðlimi og hefur þeim fækkað um 28 safnaðarmeðlimi á ofangreindu tímabili eða um 0,2%. Frá 1. desember sl.…Lesa meira

true

Skil á efni fyrir blað vikunnar

Skessuhorn verður prentað í kvöld, mánudag, og kemur því út degi fyrr en venjulega. Efni og auglýsingar til birtingar í blaði vikunnar þarf að berast í síðasta lagi fyrir hádegi í dag. Auglýsingar sendist á: auglysingar@skessuhorn.is og efni til ritstjórnar á: skessuhorn@skessuhorn.is    Lesa meira