
Kátir keppendur ÍA á mótinu um helgina. Ljósm. Sundfélag Akraness
Góður árangur hjá Sundfélagi Akraness um helgina
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Íslandsmeistaramótið í sundi í 50 metra laug fór fram um helgina í innilauginni í Laugardalslaug þar sem flestir af bestu sundmönnum landsins tóku þátt og sendi Sundfélag Akraness alls sjö keppendur á mótið í ár. Á föstudaginn uppskáru keppendur ÍA ein bronsverðlaun, Akranesmet og þrjú landsliðslágmörk. Kristján Magnússon vann til bronsverðlauna í 50 metra skriðsundi á tímanum 24,71 sek. sem er nýtt Akranesmet í piltaflokki (15-17 ára). Með þessu sundi synti Kristján sig inn í unglingalandsliðið. Einar Margeir Ágústsson varð fjórði í 100m bringusundi á tímanum 1.05,75 mín. eftir mjög jafnt sund og var aðeins 0,3 sek. frá bronsverðlaunum en þessi tími kom Einari inn í unglingalandsliðið. Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir synti sig síðan einnig inn í unglingalandsliðið í 50m skriðsundi þegar hún synti á 27,55 sek og varð í fimmta sæti. Í 50m baksundi bætti Bjartey sig líka og varð í sjöunda sæti. Guðbjarni Sigþórsson varð í áttunda sæti í 100m flugsundi á tímanum 1.06,66 mín.\r\n\r\nÁ laugardaginn bættu þau í safnið einu silfri, tveimur Akranesmetum og lágmörkum á Evrópumeistaramót unglinga. Einar Margeir vann silfur í 50m bringusundi á tímanum 29,17 sek. sem er bæði Akranesmet og undir lágmarki á EM unglinga sem fer fram í Rúmeníu í sumar. Þessi tími er næst besti tími sem hefur verið syntur á Íslandi í piltaflokki. Einungis sigurvegari greinarinnar í dag, Snorri frá SH, hefur synt þessa grein hraðar en Snorri synti á 29,08 sek. Guðbjörg Bjartey átti líka góðan dag í lauginni og bætti sig um þrjár sekúndur þegar hún varð fjórða í 200m skriðsundi á tímanum 2.12,42 mín. Stuttu síðar varð hún í fimmta sæti í 50m flugsundi. Kristján varð í fimmta sæti í 50m baksundi á 30,26 sek. og í sjöunda sæti í 100m skriðsundi á 55,82 sek. Í 4x100m skriðsundi varð strákasveit ÍA í fjórða sæti á tímanum 3.44,98 mín sem er nýtt Akranesmet. Sveitina skipuðu þeir Einar Margeir, Sindri Andreas Bjarnason, Guðbjarni og Kristján. Gamla metið var 3.45,86 mín. frá árinu 2011 og það áttu þeir Ágúst Júlíusson, Jón Þór Hallgrímsson, Birgir Viktor Hannesson og Guðmundur Brynjar Júlíusson.\r\n\r\nÁ sunnudaginn bættust við tvö silfur og eitt brons. Kristján Magnússon vann silfur í 200m skriðsundi á tímanum 2.02.79. Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir vann brons í 100m skriðsundi á tímanum 59.55 og Einar Margeir fékk silfur í 200m bringusundi á tímanum 2.26.21 sem er nýtt Akranesmet, gamla metið var 2.28.33 sem Hrafn Traustason átti frá árinu 2008.\r\n\r\nVeikindi settu strik í reikninginn fyrir sundmenn frá Akranesi á mótinu en nokkrir hafa legið mikið veikir með flensu; Sindri Andreas Bjarnason synti 100m skriðsund og var aðeins frá sínum besta tíma. Sindri þurfti síðan að draga sig úr keppni vegna veikinda. Alex Benjamín Bjarnason synti við sinn besta tíma í 50m skriðsundi en þurfti líka að draga sig úr keppni vegna veikinda. Enrique Snær Llorens náði sér ekki á strik eftir flensuna og þurfti því miður að draga sig úr mótinu og sama gildir um Karen Káradóttur sem gat ekki keppt vegna veikinda. Veikindin ollu því einnig að SA þurfti að draga sig úr keppni í flestum boðsundum helgarinnar.",
"innerBlocks": []
}