
Atkvæði greitt á Akranesi í kosningum til Alþingis 2013. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Ný kosningalög meingölluð
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nú liggur fyrir að ný kosningalög, sem meðal annars kveða á um hæfi kjörstjórnarmanna, munu setja kosningaundirbúning í mörgum sveitarfélögum í uppnám. Nýju lögin tóku gildi um áramótin og mun í sveitarstjórnarkosningunum 14. maí í fyrsta skipti reyna á þau. Sérstakar breytingar voru gerðar á reglum um hæfi kjörstjórnarmanna. Áður gat fólk ekki tekið sæti í kjörstjórn ef foreldrar, börn, systkini eða maki voru í framboði. Nú á það einnig við um afa, ömmur, systkini foreldra og maka þeirra. Einnig tengdabörn, barnabörn og nánast öll önnur fjölskyldutengsl. Nokkurn veginn er samdóma álit allra kjörstjórnarmanna sem Skessuhorn hefur rætt við að þessar nýju reglur eru til trafala. Svo tekið sé dæmi á Akranesi, þa hefur öll yfirkjörstjórnin þurft að víkja og sumir varamenn sömuleiðis reynst vanhæfir. Sveitarfélög reyna að mætti að bregðast við. Þannig auglýsti Borgarbyggð í gær eftir fólki í kjörstjórn, en þar vantar fólk í allar kjördeildir.\r\n\r\nLoks hefur vakið athygli að svo virðist sem að þar sem kosið verður óbundnum kosningum, það er að segja þar sem persónukjör fer fram, að ekki er tekið fram að fulltrúar í kjörstjórn séu undanþegnir hæfisskilyrðum umfram þau sveitarfélög þar sem kosið verður listakosningum. Lögin gera vissulega ráð fyrir að þar séu allir séu í kjöri og þar með einnig fulltrúar í kjörstjórn, sem þá er rækilega vanhæf. Þar af leiðandi verður að teljast óvíst hvort kjörstjórnir t.d. í Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppi, Eyja- og Miklaholtshreppi og Dalabyggð séu hæfar. Vafalítið mun Alþingi verða að bregðast við þessari stöðu.",
"innerBlocks": []
}