{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Alls voru 228.546 einstaklingar hér á landi skráður í Þjóðkirkjuna 1. apríl samkvæmt skráningu Þjóðskrár. Hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 720 einstaklinga síðan 1. desember 2021. Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.709 skráða meðlimi og hefur þeim fækkað um 28 safnaðarmeðlimi á ofangreindu tímabili eða um 0,2%. Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið langmest í Siðmennt eða um 160 meðlimir, sem er 3,5% fjölgun. Mest hlutfallsleg fjölgun var í Hjálpræðishernum trúfélagi eða um 15,2% og eru nú 182 meðlimir skráðir í félaginu. 29.383 einstaklingar voru skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,8% landsmanna og eru 62.452 einstaklingar með ótilgreinda trúar- eða lífsskoðunarskráningu í þjóðskrá.\r\n\r\nUm síðustu mánaðamót voru 53 trú- og lífsskoðunarfélög skráð í landinu og voru 22 þeirra með innan við 100 skráða félagsmenn.",
"innerBlocks": []
}
Hlutfallslega mest fjölgun í Hjálpræðishernum - Skessuhorn