Herdís Erna ráðinn skólastjóri Auðarskóla

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum síðasta þriðjudag að ráða Herdísi Ernu Gunnarsdóttur í starf skólastjóra Auðarskóla. Herdís er með B.Sc. í líffræði og B.Ed. í grunnskólakennarafræði og hefur leyfisbréf sem leik-, grunn- og framhaldsskólakennari. Auk þess er hún að leggja lokahönd á lokaritgerð sína í M.Ed. námi í stjórnun menntastofnana við Háskóla Íslands.\r\n\r\nÁ vefsíðu Dalabyggðar kemur fram að Herdís Erna hafi starfað sem kennari frá árinu 1995 en þá hóf hún störf sem umsjónarkennari við Grunnskólann að Laugum. Þá starfaði hún í fjögur ár sem umsjónarkennari við Grunnskólann á Siglufirði en hóf svo störf árið 2004 sem grunnskólakennari við Grunnskólann í Búðardal, síðar Auðarskóla. Árið 2012 tók Herdís til starfa við leikskóladeild Auðarskóla og gegndi þar störfum deildarstjóra og aðstoðarleikstjóra þar til árið 2021 þegar hún tók tímabundið við starfi skólastjóra Auðarskóla.",
  "innerBlocks": []
}
Herdís Erna ráðinn skólastjóri Auðarskóla - Skessuhorn