
Talningarfólk að störfum við endurtalningu atkvæða á Hótel Borgarnesi 26. september 2021. Ljósm. mm.
Kærir lögreglustjórann á Vesturlandi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fréttablaðið greinir frá því í dag að Karl Gauti Hjaltason fv. alþingismaður Flokks fólksins og síðar Miðflokksins hafi kært lögreglustjórann á Vesturlandi til ríkissaksóknara fyrir að hætta rannsókn á hendur yfirkjörstjórn á Vesturlandi vegna talningar atkvæða í Borgarnesi að loknum alþingiskosningum 25. september sl. Karl Gauti var einn þeirra frambjóðenda sem náði þingsæti á kosninganótt en missti það svo eftir endurtalningu yfirkjörstjórnar á Vesturlandi daginn eftir.\r\n\r\nFréttablaðið hefur eftir Karli Gauta að ekki hafi verið ætlun löggjafans að slaka á kröfum heldur þvert á móti að auka þær. „Í raun og veru var engin meining með því þegar kosningalögum var breytt að slaka á kröfum um öryggi og vönduð vinnubrögð kjörstjórna, innsiglun kjörgagna og öllu verklagi við kosningar,“ segir Karl Gauti. Lögreglustjórinn á Vesturlandi felldi eins og kunnugt er niður rannsókn málsins og vísaði í breytingar sem Alþingi gerði á kosningalögum meðan á rannsókninni stóð. Karl Gauti segir við Fréttablaðið að það sé hlutverk dómstóla að skera úr um refsinæmi meintra brota við framkvæmd kosninga.\r\n\r\n<em>Sjá einnig frétt Fréttablaðsins:</em>\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-52571\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/04/Karl-Gauti-600x809.jpg\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}