
Helga Sóley sigraði í undankeppni Sam Vest. Ljósm. Bragi Þór Jósefsson
Helga Sóley sigurvegari undankeppni SamVest
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þriðjudaginn 29. mars síðastliðinn komu saman um 300 unglingar í Hjálmakletti í Borgarnesi til að skemmta sér saman og hlusta á hæfileikaríka söngvara keppa um tvö sæti í Söngkeppni Samfés. Æskulýðsballi Óðals og undankeppni SamVest var að þessu sinni slegið saman í einn stóran viðburð en ekki hefur verið hægt að halda Æskulýðsballið síðustu tvö ár vegna samkomutakmarkana vegna heimsfaraldursins.\r\n\r\nBallið sóttu gestir á vegum félagsmiðstöðva um allt Vesturland en viðburðurinn hófst að venju með söngkeppninni þar sem níu keppendur af öllu Vesturlandi stigu á svið og kepptu fyrir hönd sinna félagsmiðstöðva. Það var Helga Sóley Ásgeirsdóttir frá X-inu í Stykkishólmi sem bar sigur úr býtum eftir glæsilegan flutning á laginu „It‘s All Coming Back To Me Now“. Í öðru sæti var Embla Rós Elvarsdóttir, einnig frá X-inu og í þriðja sæti Julia Caril frá Óðali í Borgarnesi.\r\n\r\nVegna reglna um að einungis megi einn söngvari keppa frá hverri félagsmiðstöð þá munu þær Helga Sóley frá X-inu og Julia Caril frá Óðali keppa fyrir hönd félagsmiðstöðva á Vesturlandi í úrslitum Söngkeppni Samfés sem fram fer 30. apríl næstkomandi.",
"innerBlocks": []
}