Heimir og Þorgeir við bátinn sinni í Stykkishólmi. Ljósm. af.

Bátnum klappað fyrir sumarið

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þeir félagar Heimir og Þorgeir úr Reykjavík voru í óða önn að laga bát sinn Seley BA á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi þegar fréttaritari Skessuhorns rakst á þá í liðinni viku. Báturinn er frá Flateyri en Heimir og Þorgeir segjast sigla á honum sér til skemmtunar en geyma hann í Stykkishólmi yfir vetrartímann. „Nei, þetta er ekkert alvarlegt,“ svöruðu þeir spurðir hvort eitthvað væri að bátnum. „Við erum bara að laga tjakkinn við flapsana. Hann er ekki að virka svo því þurfum við að kippa því í lag áður en sumarið kviknar,“ sögðu þeir félagar og bættu við: „Nei við erum ekki að fara á strandveiðar þótt báturinn sé skráður sem fiskibátur, en þó er aldrei að vita, aldrei að segja aldrei.“",
  "innerBlocks": []
}
Bátnum klappað fyrir sumarið - Skessuhorn