Fréttir

true

Enn leitað að Modestas Antanavicius

Enn er leitað að Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni sem lögreglan á Vesturlandi lýsti eftir í gær. Síðast er vitað um ferðir Modestas í Borgarnesi laugardaginn 7. janúar. Björgunarsveitir voru kallaðar út til leitar klukkan 14 í gær og var leitað fram á nótt í nágrenni Borgarness án árangurs. Leit fór af stað aftur núna…Lesa meira

true

Þorrablótin eru fram undan

Bóndadagurinn er 20. janúar næstkomandi en þá hefst Þorrinn. Landsmenn til sjávar og sveita hafa nú eftir þriggja ára bið möguleika á því að halda þorrablót án nokkurra takmarkana, en blót síðustu tveggja ára voru ýmist felld niður eða haldin í stafrænu streymi. Skessuhorn tók saman þau blót sem auglýst hafa verið almenningi á Vesturlandi.…Lesa meira

true

Ný ábendingagátt komin í loftið

Ný útgáfa af ábendingagátt fór í loftið fyrir helgi á vef Borgarbyggðar. Um er að ræða nýtt viðmót sem hefur verið í þróun í nokkurn tíma. Nýja ábendingagáttin er notendavænni en fyrri útgáfa og gerir íbúum kleift að merkja inn staðsetningar og einnig er hægt að setja inn myndir. Auk þess virkar nýja viðmótið vel…Lesa meira

true

Ráðherra flytur skrifstofu sína í Borgarbyggð

Í dag, miðvikudaginn 11. janúar, ætlar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að vera með skrifstofu sína í Borgarbyggð. Heldur hún áfram ferð sinni um landið sem hún hóf á síðasta ári. Á hverri starfsstöð er ráðherra með opna viðtalstíma þar sem allir áhugasamir eru velkomnir í stutt og milliliðalaust spjall um málefni á…Lesa meira

true

Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum verður á Bifröst

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, hafa undirritað samning um stofnun rannsóknaseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum sem starfrækt verður á Bifröst. „Markmið samningsins er að efla jákvæða byggðaþróun og styrkja sveitarstjórnarstigið á Íslandi með markvissum rannsóknum sem stuðla að hlutlægri og faglegri umræðu og leiða til betri stefnumótunar og…Lesa meira

true

VÍS bikarvikan hefst í dag með leik Snæfells og Hauka

Hin árlega VÍS bikarvika hefst í dag með undanúrslitaleikjum kvenna og á morgun leika karlaliðin sín undanúrslit. Fram undan eru tólf leikir á sex dögum, þar sem tíu bikarmeistarar verða krýndir frá 9. flokki upp í meistaraflokk. Eins og áður sagði hefst vikan á undanúrslitaleikjum kvenna. Fyrri leikurinn hefst klukkan 17:15 í dag en það…Lesa meira

true

Leit að hefjast við Borgarnes

Lögreglan á Vesturlandi lýsti í morgun eftir Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni. Síðast er vitað um ferðir hans í Borgarnesi laugardaginn 7. janúar. „Þeir sem hafa séð til hans eða vita hvar hann kann að vera niðurkominn eru beðnir að láta lögregluna á Vesturlandi vita í síma 444-0300 eða setja sig í samband við Neyðarlínuna…Lesa meira

true

Eldsmiðir leggja Úkraínumönnum lið

Stuðningur við úkraínsku þjóðina og hermenn þar er ekki einvörðungu í formi peninga. Eldsmiðir í Svíþjóð hafa sent margar sendingar af hjálpargögnum til Úkraínu; bíla, föt, eldsneyti, svefnpoka og síðast en ekki síst þessa timburkróka sem að þeir smíða og senda og eru notaðir í skotgröfum í Úkraínu til að halda timburveggjunum saman svo að…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit hafnar því að færa sveitarfélagamörk

Akraneskaupstaður bregst við og býður til viðræðna um víðtækt samstarf Meirihluti sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar hafnaði því á fundi sínum 14. desember síðastliðinn að verða við ósk Akraneskaupstaðar, frá því í október, þar sem bærinn fór fram á leyfi til að kaupa 42 hektara óbyggðs lands úr jörðinni Akrakoti í Hvalfjarðarsveit og færa sveitarfélagamörkin sem því nemur.…Lesa meira

true

Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir karlmanni

Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni. Síðast er vitað af ferðum hans í Borgarnesi laugardaginn 7. janúar síðastliðinn. Þeir sem hafa séð til hans eða vita hvar hann kann að vera niðurkominn eru beðnir að láta lögregluna á Vesturlandi vita í síma 444-0300 eða setja sig í samband við Neyðarlínuna í…Lesa meira