Fréttir

true

Skagamenn töpuðu á móti Ármanni

Ármann og ÍA léku í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var leikurinn í Kennaraháskólanum í Reykjavík. Skagamenn skoruðu fyrstu fimm stig leiksins og voru með tíu stiga forystu eftir fimm mínútna leik, 7:17. En í stöðunni 9:22 mínútu síðar fóru heimamenn á flug, skoruðu ellefu stig í röð á rúmum tveggja mínútna…Lesa meira

true

Vinsældir ráðherra afar mismunandi

Undir lok árs lét Maskína kanna hvaða ráðherrar almenningi þætti hafa staðið sig best og hverjir verst það sem af er kjörtímabilinu. Flestir sem afstöðu tóku töldu Ásmund Einar Daðason þann ráðherra sem staðið hafði sig best á kjörtímabilinu, en hann hlaut 13–14% fylgi. Vinsældir hans ná þvert á flokka. Í öðru sæti var Katrín…Lesa meira

true

Þórdís valin þjálfari ársins hjá Fimleikasambandi Íslands

Uppskeruhátíð Fimleikasambands Íslands fyrir árið 2022 fór fram í Laugardalshöll fimmtudaginn 5. janúar síðastliðinn. Árangri fimleika á Íslandi árið 2022 var fagnað og að venju var tækifærið nýtt til að veita ýmsar viðurkenningar til einstaklinga sem hafa lagt sitt af mörkum til íslensku fimleikahreyfingarinnar. Þjálfari ársins kemur úr röðum Fimleikafélags ÍA í ár, en Þórdís…Lesa meira

true

Grafið fyrir nýju leiguíbúðahúsi við Asparskóga á Akranesi

Í síðustu viku var byrjað að grafa fyrir nýju fjölbýlishúsi við Asparskóga 3 á Akranesi. Það er Bjarg íbúðafélag hses. sem byggir á þessari lóð 24 leiguíbúðir í þremur sjálfstæðum húsum á tveimur hæðum. Húsin munu mynda eins konar randbyggð með garði í miðju sem verður opinn til suðvesturs. Íbúðirnar verða tveggja til fimm herbergja…Lesa meira

true

Snæfell tapaði eftir framlengingu

Hamar/Þór og Snæfell áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik á laugardaginn og fór leikurinn fram í Hveragerði. Snæfell, sem lék án fyrirliðans Rebekku Ránar Karlsdóttur sem var veik, byrjaði mun betur í leiknum og komst í 3:12 eftir rúmar fimm mínútur. Þá fóru heimakonur loks í gang og staðan 13:18 Snæfelli í vil…Lesa meira

true

Hríðarveðri spáð í dag

Myndarlegur snjókomubakki nálgast nú norðanvert landið. Hvasst verður í allan dag og blint til aksturs m.a. á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Á Kjalarnesi mun vindur áfram slá í 35 m/s fram til kvölds. Einnig á sunnanverðu Snæfellsnesi og um tíma á veginum við Hafnarfjall.Lesa meira

true

Skallagrímur lagði Hrunamenn

Hrunamenn og Skallagrímur mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram á Flúðum. Heimamenn byrjuðu betur, komust í 5:0 og 8:2 en þá vöknuðu gestirnir og komu sér inn í leikinn. Þegar rúmar sex mínútur voru liðnar af fyrsta leikhluta í stöðunni 14:14 skoraði Skallagrímur tíu stig í röð og…Lesa meira

true

Hreinsun í Hvalfjarðargöngum tvær næstu nætur

Unnið verður við þrif og almennt viðhald í Hvalfjarðargöngum aðfararnætur þriðjudagsins 10. og miðvikudagsins 11. janúar. „Vinna stendur yfir frá miðnætti og til kl. 6:30 og verður fylgdarakstur í gegnum göngin meðan unnið er. Brýnt er að benda á að meðan á þvotti stendur er mjög hált í göngunum og vegfarendur því beðnir um að…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Hulda Margrét Brynjarsdóttir

Vildi geta verið meira með börnunum sínum Hlusta má á hlaðvarpsþáttinn Skinkuhorn hér á vef Skessuhorns, á soundcloud.com/skessuhorn og á Spotify. Einnig getur þú gerst áskrifandi að Skinkuhorninu, gegn vægu gjaldi, með því að fara inn á www.patreon.com/skinkuhorn. Þá getur þú hlustað á þættina í því hlaðvarpsforriti sem þú kýst, með því að notast við…Lesa meira

true

Færð er víða erfið á Vesturlandi

Nú er ófært um Bröttubrekku, Staðarsveit, Fróðárheiði og Útnesveg. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir er víða á vegum í landshlutanum. Holtavörðuheiði er lokuð, en þar er samkvæmt Vegagerðinni mjög blint og beðið verður með að opna þar til vind fer að lægja. Mjög hvasst er á Kjalarnesi og þar hafa umferðartafir verið í morgun. Samkvæmt umferdin.is…Lesa meira