Fréttir

true

Hreinsun í Hvalfjarðargöngum tvær næstu nætur

Unnið verður við þrif og almennt viðhald í Hvalfjarðargöngum aðfararnætur þriðjudagsins 10. og miðvikudagsins 11. janúar. „Vinna stendur yfir frá miðnætti og til kl. 6:30 og verður fylgdarakstur í gegnum göngin meðan unnið er. Brýnt er að benda á að meðan á þvotti stendur er mjög hált í göngunum og vegfarendur því beðnir um að…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Hulda Margrét Brynjarsdóttir

Vildi geta verið meira með börnunum sínum Hlusta má á hlaðvarpsþáttinn Skinkuhorn hér á vef Skessuhorns, á soundcloud.com/skessuhorn og á Spotify. Einnig getur þú gerst áskrifandi að Skinkuhorninu, gegn vægu gjaldi, með því að fara inn á www.patreon.com/skinkuhorn. Þá getur þú hlustað á þættina í því hlaðvarpsforriti sem þú kýst, með því að notast við…Lesa meira

true

Færð er víða erfið á Vesturlandi

Nú er ófært um Bröttubrekku, Staðarsveit, Fróðárheiði og Útnesveg. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir er víða á vegum í landshlutanum. Holtavörðuheiði er lokuð, en þar er samkvæmt Vegagerðinni mjög blint og beðið verður með að opna þar til vind fer að lægja. Mjög hvasst er á Kjalarnesi og þar hafa umferðartafir verið í morgun. Samkvæmt umferdin.is…Lesa meira

true

Jólin kvödd í Snæfellsbæ

Jólin voru kvödd með glæsibrag í Snæfellsbæ seinni partinn á föstudaginn með því að börn gengu fylktu liði frá Pakkhúsinu og fengu fylgd lögreglu og allskonar furðuverur gengu með. Gengið var inn fyrir Klif þar sem Slökkvilið Snæfellsbæjar hafði útbúið bálköst og þar var sungið. Leppalúði skemmti börnum ásamt álfkonu og -kóngi og að lokum…Lesa meira

true

Gular veðurviðvaranir í gildi á Vesturlandi

Gular veðurviðvaranir Veðurstofunnar eru í gildi á öllu vestanverðu landinu til hádegis í dag. Ófært er um Bröttubrekku, Staðarsveit og Útnesveg. Snjóþekja og hálka eða hálkublettir eru víða á vegum í landshlutanum og mikið hvassviðri. Lokað er fyrir umferð um Holtavöruheiði. Á Kjalarnesi eru hálkublettir og skafrenningur og hafa hviður farið upp í 46 m/s.Lesa meira

true

Óskuðu eftir upplýsingum um fyrirætlanir varðandi leikskólann Klettaborg

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 5. janúar síðastliðinn var lagt fram erindi frá leikskólastjórum Klettaborgar, þeim Steinunni Baldursdóttur og Dórótheu Elísdóttur, þar sem þær óskuðu eftir upplýsingum um fyrirætlanir sveitarfélagsins varðandi húsnæði leikskólans Klettaborgar á árinu 2023. Í erindinu segir: „Á undanförnum árum (og áratugum) hefur sífellt verið óskað eftir endurbótum varðandi starfsaðstæður svo sem fataklefa,…Lesa meira

true

Sveit Guðmundar Vesturlandsmeistari í bridds

Á laugardaginn var árlegt Vesturlandsmót í sveitakeppni í bridds spilað á Akranesi. Spilað var í sal Félags eldri borgara við Dalbraut. Þátttaka var með allra besta móti en til leiks mættu 14 sveitir sem ýmist voru skipaðar fólki úr landshlutanum eða gestum lengra að. Sveitin sem bar sigur úr býtum og sigraði því silfurstigamótið var…Lesa meira

true

Kynningarfundi um vindorkuver hefur verið frestað

„Vegna ábendinga sem fram hafa komið um stuttan fyrirvara á kynningarfundi um vindorkuverkefnið innan Brekku í Hvalfirði, sem vera átti annað kvöld (mánudagskvöld) í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit, hefur fundinum verið frestað. Vindorkufyrirtækið Zephyr Iceland og verkfræðistofan EFLA munu auglýsa nýjan fundartíma með góðum fyrirvara,“ segir í tilkynningu frá fundarboðendum.Lesa meira

true

Viðvörun fyrir Breiðafjörð og allt norðanvert landið

Gul viðvörun er í gildi vegna veðurs allt frá Breiðafirði í vestri, um Vestfirði, Strandir, Norðurland vestra og Norðurland eystra í dag. Fyrir Breiðafjörð er viðvörun í gildi til hádegis á morgun, mánudag: „Þar verður norðan hvassviðri eða stormur, 18-23 m/s og snjókoma með köflum. Einnig má búast við skafrenningi með lélegu skyggni og erfiðum…Lesa meira

true

Steinunn Árnadóttir er Vestlendingur ársins 2022 – viðtal

Undir lok ársins óskaði Skessuhorn eftir því að íbúar í landshlutanum sendu inn tilnefningar um hver ætti að hljóta sæmdarheitið Vestlendingur ársins 2022. Hver væri sá íbúi í landshlutanum sem hefði á einhvern hátt skarað fram úr á árinu. Þetta er í 25. skipti sem Skessuhorn gengst fyrir þessari útnefningu og í áranna rás hefur…Lesa meira