Fréttir

true

Kristín er íþróttamanneskja Borgarfjarðar

Kjöri íþróttamanneskju Borgarfjarðar var lýst í Hjálmakletti í Borgarnesi síðdegis í gær, á þrettándanum. Hætt er að kjósa Íþróttamann hvers árs og nýtt heiti tekið upp. Að kjörinu standa Ungmennasamband Borgarfjarðar og Borgarbyggð. Ýmis verðlaun voru afhent, svo sem hvatningarverðlaun, verðlaun fyrir setu í landsliðum og fleiri. Þeim úrslitum verður nánar gerð skil í frétt…Lesa meira

true

Fjölmenni spilar nú Vesturlandsmót í bridds

Klukkan 10 í morgun hófst Vesturlandsmót í sveitakeppni í bridds. Mjög góð þátttaka er á mótinu, eða 14 sveitir. Spilað er í sal eldri borgara við Dalbraut á Akranesi. Mótinu lýkur í kvöld með verðlaunaafhendingu og verður sagt frá úrslitum hér á vefsíðunni á morgun.Lesa meira

true

Akranes er í mikilli sókn

Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir árið 2022 hafa verið á margan hátt eftirminnilegt. „Það sem stendur upp úr frá liðnu ári er sú sókn sem Akranes er í sem sveitarfélag í uppbyggingu atvinnu, í fjölgun íbúa og í eigin uppbyggingu s.s. íþróttamannvirkja, skólahúsnæðis og húsnæðis fyrir fatlaða, sem og stórhuga áform um uppbyggingu…Lesa meira

true

Kristín kjörin Íþróttamaður Akraness þriðja árið í röð 

Kraftlyftingakonan Kristín Þórhallsdóttir var í kvöld kjörin Íþróttamaður Akraness árið 2022 en úrslitin voru kunngjörð í Frístundamiðstöðinni á Garðavöllum. Í öðru sæti í kjörinu var sundmaðurinn Einar Margeir Ágústsson og kylfingurinn Björn Viktor Viktorsson í þriðja sæti. Alls voru þrettán einstaklingar úr tólf íþróttagreinum tilnefndir að þessu sinni en það eru Íþróttabandalag Akraness og Akraneskaupstaður…Lesa meira

true

Árið var um margt eftirminnilegt

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, segir árið 2022 hafa verið um margt eftirminnilegt. „Sú staðreynd að við fengum frelsið okkar aftur eftir að hafa verið í COVID-19 glímu síðustu tvö ár er að mínu matið það jákvæðasta við liðið ár. Eðlileg samskipti og samvera fólks er nærandi og okkur öllum mikilvæg. Þó við gerum okkur grein…Lesa meira

true

„Skorradalurinn mun blómstra sem aldrei fyrr“

Jón Eiríkur Einarsson, oddviti Skorradalshrepps, segir einkum þrennt standa upp úr á liðnu ári. „Í fyrsta lagi að vera kosinn í sveitarstjórn og vera með því treyst fyrir því að reka sveitarfélagið ásamt fjórum öðrum góðum sveitungum mínum. Í öðru lagi að taka við starfi oddvita sem hefur verið bæði skemmtilegt og krefjandi. Og í…Lesa meira

true

Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í næstu viku

Unnið verður við þrif og almennt viðhald í Hvalfjarðargöngum aðfararnætur þriðjudagsins 10. og miðvikudagsins 11. janúar. „Vinna stendur yfir frá miðnætti og til kl. 6:30 og verður fylgdarakstur í gegnum göngin meðan unnið er. Brýnt er að benda á að meðan á þvotti stendur er mjög hált í göngunum og vegfarendur því beðnir um að…Lesa meira

true

Flóttafólk á vegum Hafnarfjarðarbæjar sent á Akranes

Frá því í apríl á síðasta ári hefur flóttafólki og hælisleitendum tekið að fjölga til muna hér á landi, einkum í kjölfar stríðsins í Úkraínu. Árið reyndist það langstærsta í móttöku flóttafólks. Á Akranes kom fyrsta flóttafólkið frá Úkraínu 29. apríl í fyrravor. Á síðasta ári öllu fluttu alls 80 einstaklingar í bæjarfélagið, þar af…Lesa meira

true

Aukin aðsókn í Safnahús Borgarfjarðar á milli ára

Alls var fjölgun um ríflega tólf hundruð gesti á milli áranna 2021 og 2022 í Safnahús Borgarfjarðar í Borgarnesi. Um var að ræða einstaklinga sem áttu erindi inn á safnið ýmist til þess að glugga í blöð, fá lánaðar bækur og tölvuaðgang eða nýta lærdómsaðstöðuna. Viðburðir voru einnig vel sóttir á árinu sem var að…Lesa meira

true

„Höldum áfram að skapa eftirsóknarvert umhverfi“

Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri sameinaðs sveitarfélags Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar segir liðið ár hafa verið viðburðurðaríkt í starfsemi sveitarfélagsins Stykkishólmsbæjar og Helgafellsveitar. „Það er óhætt að segja að það sem hæst bar á árinu í starfsemi sveitarfélagsins var stofnun þess með sameiningu Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar en í upphafi árs lagði samstarfsnefnd um sameininguna fram álit sitt…Lesa meira