Fréttir

true

Borgarbyggð hyggst hefja gjaldtöku við Bjarnhóla

Erindi barst byggðarráði Borgarbyggðar í síðustu viku vegna ástands á losunarstað sveitarfélagsins við Bjarnhóla. Þar fer fram móttaka jarðvegsúrgangs sem fellur til m.a. við byggingaframkvæmdir í sveitarfélaginu. Svæðið er lítið mótað og aðkoma óskipulögð. Hingað til hefur sveitarfélagið einungis borið kostnað af móttökunni sem kominn er að mörkum fjárhagsáætlunar. Byggðarráð styður að lágmarksþjónustu sé viðhaldið…Lesa meira

true

Breytingar hjá skipulags- og byggingardeild Borgarbyggðar

Í september voru gerðar skipuritsbreytingar hjá sveitarfélaginu Borgarbyggð, nánar tiltekið í skipulags- og byggingardeild sem heyrir undir stjórnsýslusvið. Mikið og langvarandi álag hefur verið á þessari deild sveitarfélagsins um langa hríð og fjöldi opinna mála. Verkefnum hefur einnig fjölgað í takti við fjölgun verkefna í sveitarfélaginu. Fram kemur í tilkynningu á vef sveitarfélagsins að legið…Lesa meira

true

Áslaug Arna heimsækir Akranes

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, verður staðsett með skrifstofu sína í Breið nýsköpunarsetri við Bárugötu á Akranesi fimmtudaginn 27. október. Snæfellsbær var fyrsti viðkomustaður Áslaugar Örnu um miðjan ágúst en hún hefur síðan þá meðal annars sótt Árborg, Akureyri, Ísafjörð og nú síðast Vestmannaeyjar. Á hverri starfsstöð verður ráðherra með opna viðtalstíma þar…Lesa meira

true

Hundur í óskilum á tónleikum á Akranesi

Tveggja manna stórsveitin Hundur í óskilum kemur fram á tónleikum Kalman – listafélags í Vinaminni, Safnaðarheimili Akraneskirkju, fimmtudaginn 27. október nk. kl. 20. Þar blása þeir nýju lífi í gamlar hækjur og eldhúsáhöld, grauta í þjóðararfinum og særa fram nýjan hljóm úr gatslitnum ellismellum og eyrnaormum í bland við glænýtt stöff. Þeir félagar Hjörleifur Hjartarson…Lesa meira

true

Norðurljósahátíðin í Stykkishólmi

Norðurljósahátíðin sem fram fór í Stykkishólmi um helgina var vel heppnuð og margt var um manninn í bænum. Á setningarathöfn hátíðarinnar voru veittar viðurkenningar fyrir framlag til menningar og lista. Það er bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar sem velur hver hlýtur viðurkenningu hverju sinni og í ár voru það Guðrún Ögn Ákadóttir, Jósep Blöndal og Jóhanna Guðmundsdóttir. Hrafnhildur…Lesa meira

true

Ugluklettur í Borgarnesi 15 ára

Mikið var um dýrðir í leikskólanum Uglukletti síðastliðinn fimmtudag en skólinn hélt þá upp á 15 ára starfsafmæli sitt. Fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að börnin í leikskólanum hafi fengið að skipuleggja daginn eftir sínu höfði og var meðal annars boðið upp á pizzu í hádeginu, hengdar voru upp blöðrur og bökuð dýrindis kaka í…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu stórt gegn Ármanni

ÍA og Ármann mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Fyrsti leikhluti var nánast jafn á öllum tölum en Ármann átti síðasta orðið undir lokin og skoraði átta stig gegn engu stigi ÍA, staðan 20:29 þegar heyrðist í bjöllunni. Í öðrum leikhluta voru Skagamenn alls…Lesa meira

true

Skagamenn unnu sigur í síðasta heimaleik sumarsins

ÍA og ÍBV áttust við í fjórðu umferð í úrslitakeppni í neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram á Akranesvelli. Eyjamenn komust yfir strax á fjórðu mínútu þegar Felix Örn Friðriksson hamraði boltann í slána og inn eftir að hafa farið illa með varnarmann ÍA. Viktor Jónsson fékk síðan…Lesa meira

true

Einar Margeir setti fjögur Akranesmet og eitt Íslandsmet

Sundmaðurinn Einar Margeir Ágústsson úr Sundfélagi Akraness tók þátt í World Cup mótinu í Berlin um liðna helgi. Alls voru sex sundmenn frá Íslandi sem tókust á við sterkasta sundfólk heims. Íslenska landsliðið stóð sig mjög vel á mótinu og voru margar góðar bætingar. Einar Margeir synti mjög vel þar sem hann bætti sig í…Lesa meira

true

Skallagrímur með þriðja sigurinn í röð

Hrunamenn tóku á móti Skallagrímsmönnum í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Gróðurhúsinu á Flúðum. Jafnt var á flestum tölum fyrstu mínútur leiksins en Skallagrímsmenn náðu síðan 0:7 kafla og staðan 11:20 eftir rúman fimm mínútna leik. Hrunamenn náðu síðan að koma til baka og minnka muninn í fjögur…Lesa meira