Borgarbyggð hyggst hefja gjaldtöku við Bjarnhóla

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Erindi barst byggðarráði Borgarbyggðar í síðustu viku vegna ástands á losunarstað sveitarfélagsins við Bjarnhóla. Þar fer fram móttaka jarðvegsúrgangs sem fellur til m.a. við byggingaframkvæmdir í sveitarfélaginu. Svæðið er lítið mótað og aðkoma óskipulögð. Hingað til hefur sveitarfélagið einungis borið kostnað af móttökunni sem kominn er að mörkum fjárhagsáætlunar. Byggðarráð styður að lágmarksþjónustu sé viðhaldið á svæðinu en loka þurfi því þegar aðstæður eru metnar óboðlegar, m.a. þegar ekki er hægt að sinna lágmarksþjónustu, eða vegna aurbleytu. Í fundargerð segir: ,,Byggðarráð beinir til því til umhverfis- og landbúnaðarnefndar að útfæra gjaldtöku á svæðinu eins fljótt og auðið er og vísar til vinnu í sveitarstjórn við fjárhagsáætlun 2023 að færa aðstæður á svæðinu til betri vegar.“ Umhvefis- og landbúnaðarnefnd mun því vinna tillögu að gjaldskrá í Bjarnhólum.",
  "innerBlocks": []
}
Borgarbyggð hyggst hefja gjaldtöku við Bjarnhóla - Skessuhorn