{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tveggja manna stórsveitin Hundur í óskilum kemur fram á tónleikum Kalman - listafélags í Vinaminni, Safnaðarheimili Akraneskirkju, fimmtudaginn 27. október nk. kl. 20. Þar blása þeir nýju lífi í gamlar hækjur og eldhúsáhöld, grauta í þjóðararfinum og særa fram nýjan hljóm úr gatslitnum ellismellum og eyrnaormum í bland við glænýtt stöff.\r\n\r\nÞeir félagar Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen, hafa fyrir löngu skapað sér algera sérstöðu í íslensku menningarlífi með Hundi í óskilum. Ekki er alltaf gott að henda reiður á hvar í litrófi listanna beri að staðsetja gjörninga þeirra félaga, hvort hér er um að ræða tónleika, leikhús, uppistand, sirkus, ljóðakvöld eða hristing úr öllu þessu. Þeir félagar hafa á undanförnum árum slegið í gegn með hverri leiksýningunni á fætur annarri, bæði norðan og sunnan heiða og hafa nú aftur tekið upp þráðinn með sína fjórðu sýningu, Njálu á hundavaði, þar sem þeir skildu við hana fyrir fullu Borgarleikhúsi í fyrra vor.\r\n\r\nAðgangseyrir er 3.500 kr. og 3.000 kr. fyrir félaga í Kalman listafélagi. Miðasala er við innganginn.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
"innerBlocks": []
}
Hundur í óskilum á tónleikum á Akranesi - Skessuhorn